Landsvirkjun og Laxey semja
thumbnail_landsvirkjun_undirritun_18.03.2024-1 (1)
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar og Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar. Ljósmynd/aðsend

Landsvirkjun og Laxey ehf. hafa gert með sér samning um sölu og kaup á endurnýjanlegri raforku til uppbyggingar nýrrar landeldisstöðvar Laxeyjar í Vestmannaeyjum.  Um er að ræða hátækni matvælaframleiðslu með afar lágt kolefnisspor.

Í sameiginlegri tilkynningu segir að verkefnið verði byggt upp í áföngum á næstu árum og nær fullri stærð 2030.

Afhending raforku samkvæmt samningi hefst í apríl 2026 og vex samhliða aukinni framleiðslu. Þegar stöðin verður komin í fullan rekstur verður aflþörfin um 22MW.

Laxey kaupir upprunaábyrgðir fyrir raforkunotkuninni og þetta er því grænn raforkusölusamningur.

Fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum

Forsenda þess að samningurinn nái fullri stærð er aukin orkuvinnsla Landsvirkjunar en gert er ráð fyrir að Búrfellslundur verði gangsettur síðla árs 2026 og Hvammsvirkjun tveimur árum síðar, 2028.

Laxey verður fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum og verkefnið mun styðja við uppbyggingu flutningsleiða þangað. Gert er ráð fyrir að verkefnið skapi um eða yfir 100 störf.

Sjálfbær verðmætasköpun

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar segir að uppbygging Laxeyjar á landeldi sé spennandi verkefni sem mun auka verðmætasköpun og útflutning frá Vestmannaeyjum og Íslandi í heild.

„Ábyrgðarfull og sjálfbær nýting endurnýjanlegra vatns- og orkuauðlinda er í samræmi við forgangsröðun og stefnu Landsvirkjunar í raforkusölu. Það er sérstaklega ánægjulegt að Laxey verði fyrsti stórnotandi raforku í Vestmannaeyjum og muni þannig styðja við áætlanir um bætt raforkuöryggi þar.“

Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar segir að stefnan hjá Laxey sé að áhrif fyrirtækisins á umhverfið verði í algjöru lágmarki og framleiðslan verði í samræmi við ströngustu staðla.

„Það er því mikilvægt fyrir okkur að nýta græna orkugjafa. Umskipti yfir í græna orku eru nauðsynleg fyrir laxeldisstöðvar á landi til að lágmarka umhverfisfótspor, draga úr kostnaði og viðhalda trausti neytenda á sjálfbærni starfseminnar. Við erum mjög ánægð með þennan samning við Landsvirkjun og erum spennt fyrir komandi samstarfi.“

Nýjustu fréttir

Eyjafréttir í nýjum búningi á nýju ári
ÍBV tekur á móti Fram í kvöld
Elliði maður leiksins og Ísland í undanúrslit
Beðið með eftirvæntingu eftir loðnuráðgjöf
KR-ingur á láni til ÍBV
Elliði Snær skoraði átta mörk í jafntefli Íslands
Fylgi flokkanna í Eyjum
Komu inn vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.