Lára Huld Guðjónsdóttir skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum
Lára Huld Guðjónsdóttir hefur verið skipuð sýslumaður í Vestmannaeyjum. Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra hefur í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti sýslumanna í nýjum umdæmum. Ný embætti sýslumanna munu taka til starfa um næstu áramót í samræmi við ný lög sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglustjóra og aðskilnað embættanna, að því að fram kemur í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu sem send var fjölmiðlum í kvöld. Lára Huld Guðjónsdóttir hefur starfað sem sýslumaður í Strandasýslu, með aðsetur í Hólmavík frá árinu 2007 en var áður fulltrúi sýslumanns á Seyðisfirði. Lára Huld tekur við starfinu af Karli Gauta Hjaltasyni.
Sýslumannsembættin verða 9 í stað 24 áður en auk breytinga á sýslumannsembætunum, hafa embættin verið aðskilin lögreglustjóraembættunum. �?annig verða skipaðir nýir lögreglustjórar en einn slíkur verður staðsettur í Vestmannaeyjum og verður lokið við skipan í þau embætti á næstu dögum.

Nýjustu fréttir

Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.