Ráðaleysi ríkjandi nema í Vestmannaeyjum?
3. september, 2024
Nemendur í GRV bregða á leik á Stakkó í vor.

„Stór hluti nemenda á yngsta stigi íslenskra grunnskóla nær ekki settum viðmiðum þegar kemur að lestrarfærni. Að loknum 1. bekk veit hluti nemenda ekki hvernig allir bókstafir stafrófsins hljóma. Með hverjum nýjum árgangi fjölgar þessum börnum. Á sama tíma fækkar þeim stöðugt sem ná viðmiðunum,“ segir í grein á forsíðu Morgunblaðsins í gær. Blaðið hefur fjallað um stöðu grunnskólamenntunar í landinu síðustu vikur og margt athyglisvert komið fram. En fáir virðast hafa áhuga á framtakinu, Kveikjum neistann í Grunnskóla Vestmannaeyja sem er að skila frábærum árangri. Eftir lok þriðja bekkjar í vor gat 91% nemenda lesið og skilið texta. Stóra fréttin er, enginn munur var á stelpum og strákum.

Í Morgunblaðinu í gær er vitnað í Auði Björgvinsdóttur, læsisfræðing og aðjunkt við menntavísindasvið Háskóla Íslands sem segir þörf á heildstæðu samræmdu námsmati í grunnskólum landsins. Skólayfirvöld hafi gert „stórkostleg mistök“ með því að haga málum þannig að ekkert slíkt mat sé við lýði í dag.

Ný stofnun á að bjarga

Umfjöllun Morgunblaðsins lýsir upplausn í menntakerfinu sem ekki síst bitnar á drengjum sem eru  að stórum hluta ólæsir eftir tíu ára nám í grunnskóla. En hættumerkin eru fleiri og nú á að redda þessu með því að leggja eina stofnun niður og stofna aðra,  Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Hún þjónustar leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.

Ekki lítið í lagt og nýi forstjórinn, Þór­dís Jóna Sig­urð­ar­dótt­ir sparar ekki stóru orðin, segir að nú verði menntun barna á Íslandi færð fram um áratugi. Harður dómur yfir menntakerfi á Íslandi alla þessa öld og aftur á þá síðustu. Gefum Þórdísi Jónu séns og vonandi gengur henni vel.

Engin viðbrögð

Á forsíðu Morgunblaðsins í dag er fyrirsögnin, Grunnskólarnir byrjaðir en ekkert bólar á viðbrögðum og þar segir: „Mennta- og barnamálaráðherra hefur enn ekki kynnt aðgerðaáætlun til að bregðast við niðurstöðum PISA-könnunarinnar, níu mánuðum eftir að þær voru birtar. Ísland lækkaði mest allra OECDríkja í PISA-könnuninni. Sýndu niðurstöðurnar meðal annars að 40% fimmtán ára nemenda á Íslandi búa ekki yfir grunnhæfni í lesskilningi. Ef horft er á heildarniðurstöður könnunarinnar sést að Ísland er í sjötta neðsta sæti allra OECD-ríkjanna og næstneðst Evrópuríkja.“

Heimsathygli

Á meðan ráðaleysi er tónninn á fastalandinu er verkefnið, Kveikjum neistann að hefja sitt fjórða ár í GRV og árangurinn er ótrúlegur.  Í Eyjafréttum í sumar segir: „Verðskuldað hefur verkefnið, Kveikjum neistann  í Grunnskóla Vestmannaeyja vakið heimsathygli. Því var hleypt af stokkunum haustið 2021 og nú eru nemendur 3. bekkjar sem hófu vegferðina að ljúka sínu 3. skólaári. Er árangur þeirra einstakur og sama má segja um bekkina tvo sem á eftir koma.  Er ljós í myrkrinu samkvæmt skýrslu Eyjamannsins, Tryggva Hjaltasonar sem leiddi m.a. í ljós að helmingur drengja á Íslandi útskrifast úr grunnskóla án þess að geta lesið sér til gagns. Þessar niðurstöður hafa m.a. komið fram í PISA könnunum og Tryggvi tók saman í skýrslunni sinni.

Ómar Garðarsson.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
DSC 2106
8. júní 2025
13:00
Golfdagurinn í Eyjum
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju í Landakirkju
8. júní 2025
17:00
Tónleikar Kórs Vídalínskirkju
Landakirkja
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.