LAXEY í Vestmannaeyjum lýkur 6 milljarða hlutafjáraukningu
14. september, 2023
Mannvviki vegna fiskeldis í Viðlagafjöru gætu litið svona út
    • Landeldi á laxi með 32 þúsund tonna framleiðslugetu
    • Seiðaframleiðsla hefst í nóvember 2023, fyrsta slátrun 2025
    • Verkefnið skapar yfir 100 bein störf og fjölmörg óbein störf

     

  • Vestmannaeyjum 14.09.2023.

    Landeldisfyrirtækið LAXEY, áður Icelandic Land Farmed Salmon,                            í Vestmannaeyjum hefur lokið hlutafjáraukningu að andvirði 6 milljarða króna til íslenskra fjárfesta.

    LAXEY hefur hafið uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum, annars vegar seiðaeldisstöð í Friðarhöfn og hins vegar áframeldisstöð í Viðlagafjöru. Gert er ráð fyrir að áframeldisstöðin muni framleiða um 32.000 tonn af laxi árið 2031, en nú eru framleidd á Íslandi um tvö þúsund tonn af landeldislaxi.

    Áframeldisstöðin verður byggð í sex jafnstórum áföngum, en stefnt er að því að fyrsti áfangi verði tilbúinn um mitt ár 2024 og að fyrsta slátrun fari fram síðla árs 2025.  Fyrsti áfangi verður einn og sér rekstrarlega sjálfbær en hver viðbótaráfangi mun auka hagkvæmni framleiðslunnar, með lægri fjárfestingarútgjöldum og rekstrarkostnaði á hvert framleitt kíló af laxi.

    Einstakar aðstæður í Vestmannaeyjum

    Skilyrði til laxeldis á landi í Vestmannaeyjum eru afar góð og aðstæður hagstæðar. Notast er við endurnýtingarkerfi á vatni í áframeldi, þar sem um 65% af sjónum eru endurnýtt en 35% eru freskur jarðsjór sem dælt er upp úr borholum á svæðinu. Vatnshitinn er einkar hagstæður til laxeldis.

    Í Vestmannaeyjum er til staðar gríðarleg þekking á matvælaframleiðslu og útflutningi sjávarfangs.  Innviðir eru sterkir, samfélagið samheldið og mannauðurinn afar öflugur. Mikil áhersla hefur verið lögð á að vanda allan undirbúning og ítarlegt mat hefur verið unnið á umhverfisáhrifum verkefnisins. Matið hefur verið kynnt ítarlega fyrir hlutaðeigandi aðilum í Vestmannaeyjum og hlotið góðar viðtökur.  Sveitarfélagið hefur sýnt verkefninu mikinn stuðning enda um mikilvæga atvinnuuppbyggingu að ræða. Þannig munu yfir 100 manns starfa hjá fyrirtækinu þegar það hefur náð fullri framleiðslugetu, auk fjölda afleiddra starfa allan ársins hring.

    Verðmætasköpun á grænum grunni

    Spurn eftir eldislaxi hefir farið stöðugt vaxandi í heiminum, sem skýrist m.a. af áherslu á heilbrigt líferni, stækkandi millistétt og stóraukinni áherslu á sjálfbærni í matvælaframleiðslu. LAXEY mun byggja framleiðslu sína á grænum gildum, þar sem notast er við 100% endurnýjanlega orku og úrgangur verður unninn til áburðarframleiðslu. Að auki verður áhersla lögð á að  laxinn verði fluttur sjóleiðina á markað til að minnka kolefnisspor.

     

     

    Öflugir kjölfestufjárfestar í Vestmannaeyjum

    Fyrrum eigendur fyrirtækjanna ÓS ehf. og LEO Seafood ehf. hafa tekið þátt í verkefninu frá upphafi og verða kjölfestufjárfestar í LAXEY. Fjölskyldan hefur stundað sjávarútveg í Vestmannaeyjum í 75 ár og býr yfir verðmætri reynslu og þekkingu á  matvælaframleiðslu, ásamt afar sterku orðspori.

    Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður í LAXEY:

    Við erum afar ánægð að þessum áfanga sé náð og það traust sem fjárfestar sýna LAXEY.  Við höfum unnið að þessu verkefni frá árinu 2019 og sjáum mikil tækifæri í framleiðslu á íslenskum landeldislaxi í Vestmannaeyjum og sölu á alþjóðlegum mörkuðum. Í Vestmannaeyjum eru kjöraðstæður til að framleiða hágæða fiskafurðir, mikil þekking og öflugur mannauður – sem er lykilatriði í þessum geira.“

    MAR Advisors hafa unnið að fjármálaráðgjöf fyrir LAXEY undanfarna 18 mánuði og voru ráðgjafar við nýafstaðna hlutafjáraukningu. MAR Advisors veita fyrirtækjum og fagfjárfestum í alþjóðlegum sjávarútvegi, orku og innviðum sérhæfða ráðgjöf.

    Nú hefst næsta skref í leit að samstarfs- og fjármögnunaraðilum á norrænum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Í því skyni hefur LAXEY fengið norska fjárfestingarbankann Arctic Securities til liðs við sig sem umsjónaraðila, auk þess sem Mar Advisors verða félaginu áfram til ráðgjafar varðandi uppbyggingu til framtíðar.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 17 Tbl EF Min
17. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst