Leggur til fimm daga lundaveiði
Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja leggur til að heimila lundaveiði í Vestmannaeyjum í 5 daga sumarið 2014, 07. – 12. ágúst, báðir dagar meðtaldir. �?etta kemur fram í fundargerð ráðsins frá fundi þess í dag. �??Árin 2011 og 2012 var engin lundaveiði heimiluð í Vestmannaeyjum að frumkvæði bæjaryfirvalda en árin þar á undan voru verulegar hömlur settar á veiði eins og gert var síðasta ár þegar fimm dagar voru leyfðar til veiða í júlí. Ákvörðunin er tekin með hliðsjón af ástandi stofnsins sl. ár og þeim mikilvæga menningarlega þætti sem lundaveiði er í sögu Vestmannaeyja. Ráðið hvetur bjargveiðimenn til þess að haga veiðum þannig að lundinn njóti ætíð vafans. Ráðið leggur einnig þær skyldur á bjargveiðimenn að ef aðstæður leyfa og þeir fara á annað borð til veiða skulu þeir skila öllum hausum af veiddum fugli til Náttúrustofu Suðurlands til rannsókna,�?? segir í fundargerðinni.
Jóhanna Ýr Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

Nýjustu fréttir

Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Afmælisdagarnir gáfu ömmunni milljónir
Koddaslagur systranna skilaði 500 þúsund til Krabbavarnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.