Leiknum í dag frestað
Leik ÍBV og FH í sjöttu umferð Pepsídeildar kvenna hefur verið frestað. Leikurinn átti að fara fram á Hásteinsvelli klukkan 18:00 í dag en fer fram klukkan 18:00 á morgun, miðvikudag. Ástæða frestunarinnar er slæmt veður í Vestmannaeyjum. Núna er 26 metra meðalvindhraði á sekúndu á Stórhöfða og rigning þannig að aðstæður til knattspyrnuiðkunnar eru ekki góðar. Veðurspáin fyrir morgundaginn er hins vegar öllu betri en þá á að vera hæglætis veður en hugsanlega rigning.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.