Í gærmorgun skreyttu leikskólabörn á Sóla Bárustíginn fyrir helgina, en Jónsmessuhátíð verður haldin þar á morgun. Börnin á Kirkjugerði hafa einnig útbúið glæsileg listaverk en krakkarnir voru búin að mála og skreyta geisladiska sem þau hengdu í trén á Bárustígnum og var útkoman stórglæsileg hjá þeim. Listaverkin munu fá að hanga fram yfir goslokahelgina. Meðfylgjandi eru myndir frá skreytingunni hjá leikskólabörnum á Sóla.