Strákarnir okkar í meistaraflokki karla mæta nýliðum Leiknis á Hásteinsvelli í dag. Leikurinn hefst klukkan 18:00.
ÍBV bíður ennþá eftir fyrsta markinu í Pepsi-deildinni á þessari leiktíð en eftir þrjá leiki er liðið ekki enn komið með stig. ÍBV er jafnframt eina liðið í deildinni sem er ekki komið með mark, ásamt því að vera eina stigalausa liðið.
Leikurinn á morgun gæti orðið mikilvægur fyrir tímabilið en þessi lið gætu verið á svipuðum slóðum í deildinni þegar uppi verður staðið. Leiknismenn hafa byrjað með látum en þeir sigruðu Valsmenn örugglega í fyrsta leik tímabilsins, liðið gerði einnig jafntefli við Stjörnuna í síðustu umferð.
Andri �?lafsson, fyrirliði ÍBV, er frá vegna meiðsla og mun hann líklega ekki vera með á morgun.