Loðnuleiðangri lokið

Loðnuleiðangri átta skipa lokið og útreikningar standa yfir. Nokkur norsk skip hafa hafið veiðar og fleiri á leiðinni á miðin. Birkir Bárðarson leiðangursstjóri segir, í samtali við vef fiskifrétta, það hafa verið nokkuð krefjandi að mæla loðnuna í vetur. Niðurstöður útreikninga verði vonandi tilbúnar fyrir helgi.

Enn eru engar niðurstöður komnar úr nýjasta loðnuleiðangri Hafrannsóknastofnunar en Birkir Bárðarson leiðangursstjóri segist gera sér vonir um að með þessum leiðangri hafi tekist að fá heildarmynd af stöðunni. Ekki ætti þá að þurfa að fara aftur í frekari leit.

Hann kaus að tjá sig ekkert um magnið að svo stöddu, en gat þó upplýst að loðnan hafi verið víða með landgrunnsbrúnum, bæði fyrir austan og vestan land.

„Fyrir vestan var það mest ungloðna sem verður þá efniviður í næstu vertíð. Kynþroska loðnan virtist vera gengin af því svæði að mestu en austan til var þetta aðallega kynþroska loðna og hún var í langmestu magni syðst út af Austfjörðunum. Þar var hún farin að ganga upp á grunninn.“

Krefjandi að mæla stofninn
Eftir loðnubrest tvö ár í röð er nú búið að leyfa veiði, alls um 61 þúsund tonn og margir gera sér vonir um að niðurstöður úr þessum leiðangri muni skila sér í mun hærri ráðgjöf.

„Þetta er búið að vera mjög krefjandi að ná að mæla stofninn núna,“ segir Birkir. „Það var nú ekkert sérstaklega gott veður alltaf. Bjarni Sæmundsson lenti í vandræðum með ísingu og skipin þarna nyrst, en við komumst í gegnum þetta.“

Spurður hvort erfitt hefði orðið að ná nógu góðri mælingu í ár til að geta gefið út ráðgjöf ef ekki verið hægt að fara í þessa aukaleiðangra með viðbótarfjármagni, segir hann að vissulega hafi þar munað mikið um.

„Þetta gæti hafa orðið erfitt ef við hefðum nálgast þetta öðru vísi. Það skipti líka miklu máli að bregðast við. Það var verðmætt að ná þessari mælingu í desember til dæmis, og svo þurftum við að stökkva til þegar við fréttum af loðnu fyrir austan land og það var mikilvægt að ná því fljótt. Við sjáum að það geta komið upp aðstæður þar sem við þurfum að geta nálgast þetta svona.“

Alls héldu átta skip á vegum Hafrannsóknastofnunar í loðnumælingar og loðnuleit í síðustu viku, og hafa aldrei verið fleiri. Þetta var þriðji leiðangurinn á árinu og sá fjórði í vetur.

Fyrstu loðnunni landað
Hér á landi var fyrsta loðnufarminum landað á Eskifirði síðasta laugardag þegar grænlenska skipið Polar Amaroq kom með tæplega 700 tonn af frystri loðnu til Síldarvinnslunnar hf.

„Loðnan sem veiddist var hin fallegasta og voru um það bil 40 stk. í kílóinu. Nokkur áta var í loðnunni,“ sagði á vef Síldarvinnslunnar.

Á annan tug norskra skipa voru í gær ýmist komin hingað til lands til veiða eða á leiðinni. Eitt þeirra, Vendla, var á heimleið til Noregs með 435 tonn af loðnu. Norska Fiskeribladet segir frá því að Vendla fái 9,61 norska krónur fyrir kílóið, eða 4,2 milljónir fyrir aflann. Þetta mun vera metverð og samsvarar um 144 íslenskum krónum fyrir kílóið og 63 milljónir fyrir aflann.

fiskifréttir.is

Nýjustu fréttir

Skýr skilaboð frá flokksmönnum 
Framtíðarsýn og grunngildi – Hvert erum við að fara?
Landeyjahöfn – Þurfum öflugt dæluskip
Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.