Lögreglan í nógu að snúast
Lögreglan hafði í nógu að snúast í liðinni viku og þá sérstaklega á sunnudaginn þegar óveður gekk yfir Eyjarnar. Telst lögreglu til að á milli 40 og 50 tilkynningar hafi komið til lögreglu og Björgunarfélags Vestmannaeyja vegna hinna ýmsu verkefna sem tengdust veðurofsanum. �?urfti m.a. að grípa til lokanna á vesturhluta Strandvegar vegna þakplatna sem fuku þar um en þakplöturnar höfðu losnað af þaki fiskvinnslu Eyjabergs.
�?ann 28. nóvember sl. var lögreglu tilkynnt um þjófnað á Trek 220 reiðhjóli grænt ( lime ) á litinn. Hjólinu mun hafa verið stolið þar sem það var fyrir utan Hásteinsveg 42. �?eir sem hafa einhverjar upplýsingar um það hvar hjólið sé niðurkomið, eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í vikunni og var í öðru tilvikinu var um minniháttar óhapp að ræða. Í hinu tilvikinu hafði ökumaður misst stjórn á ökutæki sínu á Hamarsvegi og lent utan í vegriði þannig að bifreiðin varð óökufær. �?egar lögreglan kom á staðinn kom í ljós að ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis og var hann í framhaldi af því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. �?kumaðurinn var einn í bifreiðinni og slapp án meiðsla, bifreiðin er hins vegar töluvert skemmd.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.