Lokaráðgjöf um veiðar á loðnu 869.600 tonn

Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnuafli á vertíðinni 2021/22 verði ekki meiri en 869 600 tonn, sem þýðir 34 600 tonna lækkun ráðgjafar frá þeirri sem gefin var út 1. október 2021. Ráðgjöfin byggir á samteknum niðurstöðum á mælingum á stærð veiðistofns í haustleiðangri (1834 þús. tonn) og leiðöngrum sem fóru fram frá 19. janúar til 14. febrúar (938 þús. tonn). Áætlaður afli á milli haust- og vetrarmælinga er 275 þús. tonn.

Mælingar fóru að mestu fram í leiðangri dagana 19. – 31. janúar með þátttöku skipa Hafrannsóknastofnunar, r/s Bjarna Sæmundssonar og r/s Árna Friðrikssonar. Þá náðist að mæla loðnustofninn í seinni atrennu af tveimur dagana 25. – 31. janúar í heildstæðri yfirferð frá Hornbanka að Hvalbak. Ekki var unnt að mæla vestar vegna íss. Því var farið í annan leiðangur á r/s Árna Friðrikssyni þegar skilyrði leyfðu rúmri viku síðar og náðist mæling frá Grænlandssundi austur yfir Kolbeinseyjarhrygg 10. – 14. febrúar.

Við heildarstofnmat voru niðurstöður leiðangurs í febrúar vestan 22°V lagðar við mælingar í janúar (mynd). Óvarlegt var talið að gefa sér þá forsendu að loðna á svæðinu á milli Hornbanka og Kolbeinseyjarhryggjar í febrúar væri hrein viðbót við það sem mælt var í janúar. Þar liggur til grundvallar að loðnan á svæðinu var mjög blönduð, ennfremur var töluvert af loðnu sem var skammt komin í kynþroska á og því óvíst hvenær hún muni hrygna. Árgangurinn (2019) sem ber uppi veiðina á yfirstandandi vertíð er án efa stór, en mikil óvissa er um hve stór hluti hans mun hrygna í vor. Þessir þættir geta skýrt umtalsverðan mun á mældri stærð stofnsins í haust og nú í vetur.

Ráðgjöf um aflamark byggist á því að 95% líkur séu á að hrygningarstofninn í mars verði yfir 150 000 tonnum að teknu tilliti til afráns. Samkvæmt því leiðir þessi heildarmæling til veiðiráðgjafar upp á 869 600 tonn veturinn 2021/22.

Smelltu á hlekkinn til að lesa nánar um ráðgjöf. 

mynd af dreifingu loðnu

 

 

Nýjustu fréttir

Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Bæjarráð samþykkir að selja hlut í Landsbankanum
Lokaumferðin: ÍBV fær topplið Vals í heimsókn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.