Lumar þú á ljósmyndum frá fyrri �?jóðhátíðum
Í ár eru 140 ár liðin frá því Eyjamenn komu fyrst saman í Herjólfsdal til að halda �?jóðhátíð. �?eir félagar, Sighvatur Jónsson og Skapti �?rn �?lafsson eru af því tilefni að vinna heimildarmynd um þjóðhátíðina, í samstarfi við ÍBV íþróttafélag og Vestmannaeyjabæ. Myndin verður væntanlega tilbúin til sýningar á næsta ári.
Einnig eru þeir félagar að vinna að litlu verkefni sem felst í því að segja sögu �?jóðhátíðar í máli og myndum á upplýsingaskiltum sem komið verður upp í Herjólfsdal yfir hátíðina. Eftir �?jóðhátíð verða söguskiltin tekin niður og komið fyrir í sjoppuopunum á nýja sviðinu í Herjólfsdal. �?annig verður hægt að lesa sér til um hátíðina okkar í Herjólfsdal og skoða myndir frá fyrri hátíðum allt árið um kring.
Skapti skrifar á faceboosíðu sína: �??
Nú vantar okkur hjálp frá ykkur kæru Eyjamenn! Lumar þú á gömlum ljósmyndum frá fyrri �?jóðhátíðum? Við erum að horfa á tímabilið 1940 �?? 1990. Okkur vantar allskonar ljósmyndir �?? úr tjöldunum, bekkjabílunum, frá setningunni, kvöldvökunum, skátaskemmtunum, frá Breiðabakka o.s.frv.
Ef þú ert með ljósmyndir, sem búið er að skanna inn í góðum gæðum, og langar að taka þátt í þessu verkefni máttu endilega hafa samband við mig hér á Facebook, senda mér línu á netfangið skaptiorn@gmail.com eða slá á þráðinn í síma 899-2200.
Meðfylgjandi ljósmynd er af Stefáni Árnasyni, yfirlögregluþjóni í Vestmannaeyjum, eða Stebba pól, sem var kynnir á �?jóðhátíð í um 30 ár og eldri Eyjamenn muna vel eftir. Ljósmyndin er fengin með góðfúslegu leyfi frá Ljósmyndasafni Vestmannaeyja.

Nýjustu fréttir

Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Sóley og Örlygur Helgi eru klúbbmeistarar GV 2026
Rannsóknum fyrir Eyjagöng miðar vel áfram
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.