Luna fann fíkniefni bæði úti og inni
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í liðinni viku án þess þó að upp hafi komið alvarleg mál. Helgin fór fram með ágætum og frekar rólegt var á öldurhúsum bæjarins. Að vanda þurftu einhverjir aðstoð lögreglu vegna hinna ýmsu atvika sem upp komu.
�?rjú fíkniefnamál komu til kasta lögreglu um liðna helgi en um var að ræða ætluð fíkniefni sem fundust við eftirlit lögreglu með fíkniefnaleitarhundinum Lunu á einum af veitingastöðum bæjarins. Efni þessi fundust á gólfi og fyrir utan veitingastaðinn og er líklegt að þeir sem voru með þessi efni í sínum fórum hafi hent þeim frá sér þegar þeir urðu varir við lögreglu.
Alls liggja 9 kærur fyrir vegna brota á umferðarlögum eftir liðna viku. Sex af þeim eru vegna vanrækslu á að nota öryggisbelti við aksturinn, ein vegna aksturs sviptur ökuréttindum, ein vegna ólöglegrar lagningar ökutækis og ein vegna vanrækslu á að greiða vátryggingar ökutækis, auk þess sem skráningarnúmer ökutækisins var fjarlægt af því.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.