Uppfært: Maður handtekinn vegna kynferðisbrots
Jóhannes �?lafsson yfirlögregluþjónn í Eyjum staðfestir það við Vísi að maður hafi verið handtekinn vegna nauðgunar sem ætlað er að hafi átt sér stað aðfararnótt sunnudags.
�??�?að er mál í rannsókn hjá okkur en ekkert hægt að segja, við munum gefa út tilkynningu þegar meira liggur fyrir. Málið er á viðkvæmu rannsóknarstigi, en ég get staðfest að maður var handtekinn og hefur gist fangageymslu vegna þeirrar rannsóknar.�??
Samkvæmt heimildum Vísis var þetta snemma morguns, vitni sá hvað átti sér stað, hringdi í lögregluna og mun sá hafa tekið myndir sem eiga að renna stoðum undir það að um nauðgun hafi verið að ræða. Spurður hvort um væri að ræða �??aðkomumann�?? sagði Jóhannes að úti í Eyjum væru allir Eyjamenn, og vildi ekki svara því til.
Mikill erill var vegna Goslokahátíðar og annars hjá lögreglu. En, að sögn Jóhannesar komu ekki upp nein önnur stærri líkamsárásarmál. Umræða um nauðganir í tengslum við �?jóðhátíð, sem nú nálgast, hafa reynst Eyjamönnum erfiðar, en Jóhannes segir að mikil öryggisgæsla verði og myndavélakerfi komið upp; mikið eftirlit allra sem að koma. �??�?að var engin kæra í fyrra. Okkar markmið er að svo verði einnig í ár.�?? Vísir.is greindi frá.

Uppfært:
Í frétt á mbl.is er haft eftir Jóhannesi �?lafssyni yfirlögregluþjóni að það sé ekki rétt sem komið hafi fram á Vísi að um nauðgun hafi verið að ræða held­ur grun um kyn­ferðis­brot.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.