Maggi Gylfa í heimsókn í 16-liða úrslitum
Í hádeginu var dregið í 16-liða úrslitum Borgunarbikars karla en Eyjamenn voru í pottinum eftir sannfærandi sigur á Haukum í 32-liða úrslitum. Eyjamenn duttu í lukkupottinn að því leytinu til að þeir fengu heimaleik en andstæðingurinn hefði svo sem getað verið slakari því ÍBV dróst gegn Val, sem hefur farið vel af stað í Íslandsmótinu. �?jálfari Valsmanna er Eyjamönnum að góðu kunnur, Magnús Gylfason sem tvívegis hefur þjálfað ÍBV. Leikurinn fer fram miðvikudaginn 18. júní næstkomandi en aðeins níu eftir að liðin spila á sama velli í Íslandsmótinu. �?að mun því væntanlega glymja vel í fjöllunum í kringum Hásteinsvöll 9. og 18. júní enda Magnús þekktur fyrir öflug köll inn á völlinn á meðan leik stendur.
16-liða úrslit
Stjarnan – �?róttur
Keflavík – Hamar
KR – Fjölnir
KV – Fram
Víkingur R. – Fylkir
BÍ/Bolungarvík – ÍR
Breiðablik – �?ór
ÍBV – Valur

Nýjustu fréttir

Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti
Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag
Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.