Magnaðar myndir og myndband úr �?rídröngum
Nú standa yfir lagfæringar á vitanum í �?rídröngum en Vegagerðin er að taka vitann í gegn. Í dag fóru sex málarar og tveir rafvirkjar út með þyrluflugmönnunum Gísla Matthíasi Gíslasyni og Jóni Kjartani Björnssyni sem var flugstjórinn í dag en báðir vinna þeir hjá Norðurflugi. Málararnir urðu eftir og ætla að mála og fríska upp á útlit vitans en Gísli og Jón munu sækja þá á morgun. Rafvirkjarnir voru mjög ánægðir með búnaðinn í vitanum og allt virkaði vel sagði Gísli Matthías í samtali við Eyjafréttir en það eru sólarrafhlöður sem hlaða inn á geymanna fyrir vitann.
Lendingarpallurinn í �?rídröngum er með þeim flottari og sýnir þetta magnaða myndband lendingu þyrlurnar þar í dag. Gísli Matthías tók myndbandið sem og myndirnar sem fylgja fréttinni en hann er duglegur að leyfa almenning að fylgjast með ævintýrum sínum á facebook síðu sinni My Life as a Helicopter Pilot sem finna má hér.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.