Makrílveiðar á lokasprettinum

„Makrílveiðarnar hafa gengið misjafnlega eftir dögum. Veiðisvæðið stórt og nú er flotinn komin norður undir lögsögu Svalbarða þar sem ágætis veiði hefur verið um sl. helgi. Það þýða rúmar 600 sjómílur til Þórshafnar og 850 sjómílur til Eyja,“ sagði Eyþór Harðarsson, útgerðarstjóri Ísfélagsins.

„Ísfélagið hefur tekið á móti um 9000 tonnum af makríl og þar af hafa 70% aflans farið til frystingar og 30% til bræðslu.  Síðustu daga heftur gengið vel að veiða og eru Sigurður, Álsey og Suðurey á landleið til Þórshafnar með góðan afla. Heildarveiðin komin í um 13.500 tonn af 19.500 tonna heimildum sem Ísfélagið hefur til ráðstöfunar,“ sagði Eyþór.

Vinnslustöðin

„Makrílvertíðin er komin á lokametrana hjá okkur. Við eigum eftir að veiða um 3.000 tonn af þeim 19.500 tonnum sem Vinnslustöðin og Huginn höfðu til ráðstöfunar í upphafi,“ segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri hjá Vinnslustöðinni.

„Heilt yfir hefur þetta gengið vel en veiðin hefur verið sveiflukennd, stundum góð og stundum alls engin. Það munaði mikið um að geta veitt þó nokkurn hluta makrílsins innan lögsögunnar en undanfarið hefur veiðin eingöngu verið lengst norður í Smugu. Því fylgja langar siglingar með tilheyrandi frátöfum, auk þess sem makríllinn þolir illa langar siglingar.

Það er ekki gott að segja nákvæmlega hvenær þetta klárast, núna í augnablikinu er lítil sem engin veiði og það gæti alveg eins orðið erfitt og tafsamt að sækja það sem eftir er,“ sagði Sverrir.

Gullberg VE, skip Vinnslustöðvarinnar kemur til hafnar með góðan afla.

Mynd Addi Í London.

 

Nýjustu fréttir

Heilsurækt við Íþróttamiðstöðina boðin út á ný eftir kærumál
Góður mánudagur sem varð enn betri!
Fimm skip til loðnuleitar
Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.