Málefni eldri borgara til öndvegis
Málefni eldri borgara hafa verið mér mjög hugleikin enda um að ræða þann hóp fólks sem lagði grunninn að því samfélagi sem við búum í. Hefur mér oft fundist sem það vilji gleymast í amstri dagsins og hraða samtímans. Á stundum hefur mér fundist fljótfærnis ákvarðanir hafi verið teknar sem beinlínis hafa skaðað stöðu eldri borgara og þá helst hvað varðar fjárhagslegt sjálfstæði þeirra og að þeir fái að njóta ævikvöldsins áhyggjulaust og með reisn. Í samfélagi eins og okkar hér í Eyjum eigum við flest okkar náin tengsl við þá sem búnir eru að skila sínu til samfélagsins og fá, vonandi sem lengst, að njóta ævikvöldsins við eins góðan aðbúnað og mögulegt er.
Sú stefna hefur almennt verið ríkjandi að gera eldri borgurum kleift að dvela á sínum heimilum eins lengi og mögulegt er. Til þess að svo megi verða þarf að vera til staðar öflug og góð þjónusta. Á þetta hefur verið lögð áhersla hér í okkar sveitarfélagi og er það vel en auðvitað má alltaf gera betur og að því er stefnt. �?að sem hefur komið sér einstaklega vel er sú ákvörðun bæjaryfirvalda að fella algjörlega niður fasteignagjöld á alla sem eru 70 ára og eldri. �?essi aðgerð er einstök á Íslandi og hefur vakið mikla athygli. Tel ég þetta eitt það besta sem gert hefur verið til að auðvelda eldri borgurum að búa á sínu heimili eins lengi og mögulegt er.
�?egar sá tími kemur að grípa þurfi til annarra úrræða höfum við frábært dvalar- og hjúkrunarheimili sem eru Hraunbúðir. Ljóst er að það er orðið allt of lítið og því þarf að huga að stækkun þess. �?að er það verkefni sem við þurfum að ráðast í enda löngu orðið tímabært. Til að það megi verða þarf að tryggja að ríkið greiði lögboðin dvalargjöld. Fyrir því þurfum við að sækja fram af fullum þunga. Eitt af baráttumálum okkar sjálfstæðismanna í næstu kosningum er að ná því takmarki á næsta kjörtímabili að stækka Hraunbúðir og gera góða þjónustu þar enn öflugri. Fá ríkið til að standa við sinn þátt málsins og eins að ná því fram að málefni eldri borgara verði algjörlega á forræði sveitarfélagsins. �?að teljum við bestu leiðina til að þjónusta okkar fólk eins og við teljum þurfa í góðu samkomulagi við félag eldri borgara. �?á viljum við styðja enn frekar við félagsstarf eldri borgara sem er afar mikilvægt og hefur svo sannarlega verið á mjög góðu skriði hjá okkur.
�?að skiptir máli hvernig staðið verði að þessum málum og því vil ég ásamt félögum mínum leggja okkur öll fram til ná settu marki.
Kæru Eyjamenn, stöndum saman í þessum mikilvægu málefnum er varða eldri borgara okkar samfélags.
Geir Jón �?órisson
Skipar 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum.

Nýjustu fréttir

„Við erum ótrúlega stolt af ykkur“
Mikill ferðamannastraumur um helgina – myndband
Heimir og Særún heilluðust af Vestmannaeyjum
Glæsilegu TM móti lokið – Þróttur R. varð TM móts meistari
ÍBV getur farið upp fyrir Þór
Sýndu fjölbreytni, metnað og sköpunargleði
ÍBV stelpurnar gerðu jafntefli við Þrótt R.
Lokadagur TM-mótsins: Gleði, keppni og ógleymanlegar minningar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.