Margverðlaunuð fyrir góðan árangur

Anna María Lúðvíksdóttir útskrifaðist frá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyja í vor af náttúruvísindalínu.

Hún fékk einnig viðurkenningar fyrir mjög góðan árangur í íslensku, dönsku og spænsku. Þá fékk hún viðurkenningu fyrir mjög góðan heildarárangur í félagsvísindagreinum á stúdentsprófi, mjög góðan árangur í raungreinum. Einnig fyrir Menntaverðlaun Háskóla Íslands eru veitt framhaldsskólanemum sem sýnt hafa framúrskarandi árangur á stúdentsprófi, með meðaleinkunn 8,75 eða hærra og fyrir mjög góðan heildarárangur á stúdentsprófi.

Spurð um hvað standi upp úr eftir skólagöngu hennar í FÍV segir hún að það séu áhugaverðir áfangar og auðvitað vinirnir.

Er hún er spurð um hvað takur við hjá henni segir Anna María að í sumar sé það vinna og að njóta með vinum og fjölskyldu. Í haust ætlar hún að halda áfram að vinna og skoða hvaða nám er í boði.

Hvað framhaldið varðar í námi segir Anna að hún sé ekki alveg ákveðin, en finnst líklegt að hún endi í heilbrigðisgeiranum. Að lokum spurðum við Önnu Maríu hvort hún vilji koma einhverju á framfæri á þessum tímamótum, og svarar hún um hæl  „Mæli með FÍV og gleðilegt sumar.”

 

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.