Mark Schulte ekki með ÍBV í sumar

Hann hefur því komist að samkomulagi við ÍBV um riftun samningsins þar sem leikmaðurinn sá ekki fram á að geta beitt sér að fullu í sumar.

Á spjallsíðu ÍBV segir Gísli Hjartarsson frá því að hann sé að taka við aðstoðarþjálfarastöðu í heimalandi sínu.

“Schulte fékk félagaskipti til USA fyrir um það bil mánuði síðan en hann er núna aðstoðarþjálfari hjá einhverju 3 deildarliði þar. Schulte hefur átt í erfiðum meiðslum í vetur og sá ekki fyrir sér að hann yrði fullfær um að spila sumarið af fullum krafti með ÍBV sökum þessa. Honum bauðst þessi aðstoðarþjálfarastaða þarna úti hjá einhverjum félögum sínum og með þessi meiðsli sem hrjá hann þá ákváðum við að leyfa honum að yfirgefa herbúðir ÍBV og veita honum félagaskipti ef honum tækist að tjasla sér saman í leikhæft ástand. Svo skilst mér að hann sé farin að huga að stofnun fjölskyldu. Hann verður því ekki á skerinu í sumar en tek það fram að hann hefur þegar sent inn fyrirspurn um það hvenær þjóðhátíðin er.”

Gísli sagði í stuttu samtali við www.sudurland.is að forráðamenn ÍBV væru enn að leita að liðsstyrk erlendis frá fyrir komandi sumar.

Nýjustu fréttir

Emil og félagar í U17 áfram í næstu umferð undankeppni EM 2027
Íris hvetur þingmenn til að skipuleggja ferðina út frá „löngu leiðinni“
Göngustígur kominn að Sjónarhorni Flakkarans
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar síðdegis
Dýpkuðu 32 þúsund rúmmetra við Landeyjahöfn
Logn og bros á Stórhöfða
Slökkviliðsstjóri söðlar um eftir tíu ár í starfi
Útlit fyrir breyttar siglingar Herjólfs næstu daga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.