Milljarðafjárfestingar á teikniborðinu
Vinnslustöðin hefur skrifað undir samninga um að smíða skip í Kína. Áætlað er heildarkostnaður verði um tveir milljarðar króna og að skipið verði tilbúið á fyrri hluta árs 2016.
Fleiri fjárfestingartíðinda er að vænta frá félaginu en Guðmundur �?rn Gunnarsson stjórnarformaður sagði á aðalfundi VSV að stjórn og stjórnendur myndu stíga varlega til jarðar og taka hlutina í öruggum skrefum næstu árin. Í skýrslu sinni til aðalfundarins sagði hann meðal annars:
�??Nú er verið að kanna og undirbúa aðrar mögulegar framkvæmdir, svo sem byggingu nýs uppsjávarfrystihúss sem hefur lengi verið á dagskrá, stækkun frystigeymslu, byggingu hráefnistanka sem og nýs mjölhúss auk frekari endurnýjunar í skipaflota félagsins. Fjárfestingar þessar nema á bilinu 5-7 milljörðum króna sem eru gríðarlegir fjármunir.
Eitt er samt víst: Við munum ráðast í þessar fjárfestingar í nokkrum skrefum þannig að við sjáum fyrir að geta staðið í skilum við alla okkar lánardrottna, skilað viðunandi arði til hluthafa og fært okkur hægt og bítandi inn í framtíðina. �?að sem helst tefur okkur í þessari vegferð eru alltof há veiðigjöld!
�?g vil svo nefna hér að til stendur til að vinna nýtt deiliskipulag á athafnasvæði Vinnslustöðvarinnar sem er forsenda uppbyggingar félagsins til lengri tíma litið.
Eigendur Vinnslustöðvarinnar hafa að leiðarljósi að stíga varlega til jarðar og fara ekki fram út sér í rekstri eða fjárfestingum. Sígandi lukka er best, eins og þar stendur.
Sumum finnst reyndar lítið gerast hér umfram það að halda hjólunum gangandi frá degi til dags en því er ég ósammála. Nægir að nefna að við keyptum Stíganda á árinu 2013 og Eyjaís núna í ár, 2014. Við ætlum að stækka frystigeymsluna stórlega og hefjumst væntanlega handa við verkefnið fyrir lok yfirstandandi árs.
Við keyptum 75% hlut í Marhólma, sem er arðsöm og góð fjárfesting. Og við stefnum loks að því að sameinast Ufsabergi útgerð formlega. �?að skref er til mikilla hagsbóta fyrir félagið og eigendur þess. �?á skoðun hef ég látið áður í ljósi og ítreka hér.
Á hluthafafundi fyrr á þessu ári var stjórn félagsins falið að undirbúa samruna Ufsabergs útgerðar við VSV. Samrunaáætlun var samþykkt í stjórn Ufsabergs útgerðar og á stjórnarfundi VSV fyrr í dag. Unnið hefur verið verðmat á félögunum og gert er ráð fyrir að aðrir eigendur Ufsabergs útgerðar eignist 3,98% í VSV að samruna loknum.
Fari sem horfir verður boðið til hluthafafundar VSV undir lok sumars til að bera samrunann undir ykkur, endanleg ákvörðun er ykkar.�??
kvotinn.is

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.