Í umræðu um ályktun aðalfundar Félags eldri borgara um stækkun Hraunbúða í bæjarstjórn í gær lagði Eyjalistinn fram tillögum um að í stað áætlaðra framkvæmda við endurgerð Fiskiðjunnar að upphæð 120 milljónir króna sem er á fjárhagsáætlun ársins 2015 verði gert ráð fyrir hönnun og stækkun Hraunbúða, með breytingum á fjárhagsáætlun úr 2 milljónum króna í 122 milljón króna. Tillagan var felld með 5 atkvæðum D-listans gegn 2 atkvæðum E-listans.
Sjálfstæðismenn létu bóka að beðið er eftir svörum frá Framkvæmdasjóði aldraðra um það hvort styrkur fáist frá sjóðnum til að ráðast í framkvæmdir. �??�?á er einnig unnið að samningum við HSU varðandi nýtingu á sjö hjúkrunarrýmum sem eru staðsett á HSU. Mikilvægt er að klára þá vinnu áður en ráðist er í tilviljanakenndar breytingar á verkferlum,�?? segir í bókuninni. Vilja bæjarfulltrúar D-lista einnig ítreka það sem áður hefur komið fram, að stefnumótun í málefnum aldraða hafi hingað til verið unnin á faglegum forsendum en ekki flokkpólitískum. �??Seinast í gær fundaði stýrihópur um málefni aldraða og þar eins og í öll önnur skipti samþykkti fulltrúi E-lista allt sem fram kom án nokkura vísbendinga um ósætti eða ábendinga um að E-listi teldi fjármagns vant. Að lokum skal ítrekað að framvinda í málefnum aldraðra strandar ekki á fjármagni og tillaga E-lista er því til þess eins að taka málefni úr farvegi sátta og setja í farveg átaka. Í því mun D-listi ekki taka þátt,�?? segir í lokaorðum bókunarinnar.
E-listinn svaraði með eftirfarandi bókun: �??Ef þetta er ekki spurning um að þetta strandi á fjármagni af hverju er verið bíða eftir svari frá Framkvæmdasjóði aldraðra? �?etta verkefni er bara orðið svo brýnt í Vestmannaeyjum í dag að við teljum mikilvægt að leggja meiri kraft í þetta. Góð samvinna í stýrihópi hefur ekkert með þessa tillögu að gera. �?au eru að vinna að lausnum til framkvæmda og hefur sá hópur unnið gott starf. �?ll peningavöld liggja aftur á móti hjá bæjarstjórn. �?ví má ekki draga heilindi fulltrúa E-lista í stýrihópi í efa.�??
D-listinn svaraði með bókun: �??Meirihlutinn ítrekar það sem áður hefur komið fram um að í málefnum sveitarfélagsins er vönduð stjórnsýsla tekin alvarlega. �?að verður að teljast með öllu óábyrgt að leggja til að ráðist verði í framkvæmdir við hjúkrunarheimili án þess að fyrir liggi samningur um rekstur við ríkið sem er ábyrgt fyrir slíku. Sérstaka undrun vekur að tillaga um slíkt komi fram þegar fyrir liggja áætlanir um að ráðast í síkar samningaviðræður. �?rátt fyrir þetta upphlaup E-lista mun meirihluti D-lista áfram leggja áherslu á samstarf við hagsmunaaðila með það að markmiði að nýta árið 2015 til undirbúnings í málefnum aldraðra til að verklegar framkvæmdir geti hafist árið 2016.
Liðurinn var svo samþykktur með fimm atkvæðum D-lista, bæjarfulltrúar E-listans sátu hjá.
Ályktun Félags eldri borgara:
Aðalfundur Félags eldri borgara sem haldinn var þann 6. febrúar skorar á bæjarstjórn Vestmannaeyja og bæjarráð að hlutast til um að strax verði ráðist í framkvæmdir við stækkun Hraunbúða. �?örfin aukist með hverjum degi fyrir heimilisrými og nú séu 29 íbúar í Vestmannaeyjum sem fengið hafa vistunarmat á biðlista eftir plássi á Hraunbúðum.
�?ar fyrir utan sé fólk sem enn býr í heimahúsum og þyrfti heilsu sinnar vegna að komast á Hraunbúðir. �??Svo við tölum ekki um þá sem eru með heilabilun á misjafnlega háu stigi en búa enn heima hjá sér. �?að er því deginum ljósara að þörfin er mikil í þessum málaflokki og væntum við mikils af skjótum viðbrögðum ráðamanna bæjarins í þessu sambandi,�?? segir í ályktuninni.