Misjafn afli á Höfðanum
Bergur_vestmannaey_naer_24_IMG_4466
Vestmannaey VE og Bergur VE. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Ísfisktogararnir Vestmannaey VE og Bergur VE lönduðu í heimahöfn í Vestmannaeyjum í fyrradag að afloknum fyrsta túr eftir sjómannadag. Bæði skip voru að veiðum á Ingólfshöfða en þar var afli mjög misjafn. Vestmannaey landaði 66 tonnum af blönduðum afla og Bergur um 30 tonnum.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir í samtali vefsíðu Síldarvinnslunnar að þeir hafi fengið góðan afla af og til en þess á milli hafi hann verið mjög fátæklegur.

„Við vorum allan tímann á Ingólfshöfða en tókum þó eitt hol í Skarðsfjörunni í lokin. Það má segja að veðrið hafi verið blíða og bræla. Stundum var nánast logn en svo rauk hann upp og fór allt upp í 36 metra. Aflinn er mjög blandaður, mest af þorski en líka dálítið af löngu og steinbít og mörgum fleiri tegundum. Við rákumst á bletti sem gáfu fisk en víða var lítið að hafa,”

segir Birgir Þór. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi, var ekki sáttur við aflabrögðin.

„Við hittum ekki á þetta núna, en stundum er þetta þannig. Tíminn á miðunum var líka stuttur eða innan við tveir sólarhringar. Okkur gekk illa að finna einhvern fisk að ráði en þetta verður bara betra næst. Aflinn er alger blanda.”

segir Ragnar. Bæði skip héldu á ný til veiða að löndun lokinni á fimmtudag og var stefnan tekin á veiðar fyrir austan land.

Nýjustu fréttir

Nærri 8.500 gestir sóttu IceFish
Vatnslekinn rakinn til ónýtrar lagnar við Sprönguna
Eyjablikksmótið fer fram í Vestmannaeyjum um helgina
Síðasti opni fundur Vina í bata á mánudag
ÍBV tapaði með sex mörkum á Akureyri
Elmar með tíu stoðsendingar í sigri Nordhorn
Frá borholusjó til flögusalts
46 íbúðir í byggingarferli í Eyjum – 20 fullbúnar en ónotaðar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.