Mjög ánægður með endurbyggingu 15. flatarinnar
Á laugardag var leikin Fyrirtækjakeppni Golfklúbbs Vestmannaeyja og tóku 70 fyrir­tæki þátt í henni. Í þessu móti var í fyrsta sinn leikið á hinni nýuppgerðu 15. flöt en í sumar hefur 15. brautin verið leikin sem par 3 braut og margir sem voru búnir að hlakka til þess dags er brautin yrði par 4 á ný.
Guðgeir Jónsson, vallarstjóri GV, segir að fljótlega upp úr síðustu áramótum hafi sú ákvörðun verið tekin af stjórn og vallarnefnd GV að fara í að endurbyggja flötina sem var mjög illa farin. Ástæðan var mikið saltmagn sem safnast hafði í jarðveginum og ekki skolast burtu. Um miðjan apríl hófust framkvæmdir við flötina en moka þurfti burt öllum jarðvegi í henni. �?etta þýddi talsvert umrót og m.a. þurfti að leggja veg þvert yfir 13. brautina til þess að bílar kæmust að flötinni. �?etta vakti nokkurn úlfaþyt í netheimum; eldheitir náttúruverndarsinnar jusu úr skálum reiði sinnar yfir þessu jarðraski en róuðust þó þegar upplýstist að hér væri aðeins verið að lagfæra golfvöllinn og allt yrði aftur komið í samt lag er liði á sumarið.
�??�?etta rask tók fimm eða sex vikur,�?? segir Guðgeir. �??Og eftir að öllum jarðvegsframkvæmdum var lokið, var svæðið lagfært á nýjan leik og allir gátu tekið gleði sína á ný. �?að var algerlega skipt um jarðveg, líklega um 350 rúmmetrum mokað í burtu og nýr jarðvegur settur í staðinn auk þess sem vökvunarkerfi var lagt í flötina. �?essi nýi jarðvegur var í þremur lögum. Neðst var sett gróft burðarlag, síðan 10 cm millilag og svo efst 30 cm rótarlag sem er að mestu leyti sandur. �?á var einnig sett í flötina svokallað humus-efni sem á að halda næringu betur í jarðveginum.�??
Nánar er rætt við Guðgeir í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.