Myndband af hlaupurum um borð í Herjólfi
Eins og greint var frá í síðustu viku var hlaupahópurinn �?tmeða að hlaupa hringinn í kringum landið til að vekja athygli á sjálfsvígum ungra karlmanna. Hópurinn kom við í Vestmannaeyjum og hljóp um borð í Herjólfi á meðan ferðinni stóð. Hér má sjá myndband af hlaupurum um borð í Herjólfi.
,,Framlag hlaupahópsins til átaksins felst í því að hlaupa hringinn í kringum landið eftir þjóðvegi eitt . Markmið hópsins er að hlaupa vegalengdina á styttri tíma en nokkur tíma hefur áður verið gert eða innan við fimm sólarhringum. Hlaupahópurinn skiptir sér upp í fimm pör í hlaupinu, einn karl og eina konu og hleypur hver hlaupari í 30 mínútur í senn í því skyni að halda hröðu �??tempói�?� allan hringinn.
Hlaupið er mjög krefjandi því hver hlaupari þarf að meðaltali að hlaupa á 12 km hraða tæplega 30 km leið á hæðóttu undirlendi á hverjum einasta degi. Á milli hlaupalota hvílast og nærast hlaupararnir í lítilli rútu. Hlaupið hefst þann 30. júní og lýkur með grillveislu í Reykjavík þann 5. júlí.
Með hlaupinu vill hópurinn vekja athygli á algengi sjálfsvíga ungra karla og safna fé til að kosta forvarnarmyndband og herferð til að fækka sjálfsvígum í þessum viðkvæma aldurshópi. Sjálfsvíg hafa tekið við af bílslysum sem algengasta dánarorsök ungra íslenskra karla á allra síðustu árum,�?? segir í tilkynningu frá hópnum.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.