Á laugardaginn verður bikarslagur milli ÍBV og Vals í 2. flokki karla. Leikurinn hefst klukkan 16 og sigurvegari leiksins tryggir sér farseðilinn í úrslitaleikinn sem fer fram sunnudaginn 1. mars í Laugardalshöllinni. 2. flokki hefur gengið vel í vetur og tryggði sér meðal annars sæti í 1. deild en það hefur ekki gerst í langan tíma. Á sunnudaginn mætast svo liðin aftur en þá í deildinni. Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 13.
3. flokkur kvenna á einnig möguleika á sæti í bikarúrslitaleiknum 1. mars en sigurvegari leiks ÍBV og ÍR mætir Selfossi í úrslitaleiknum. Leikurinn verður spilaður í Austurbergi klukkan 12:30.
Mikilvægt er að sem flestir fjölmenni á völlinn um helgina enda til mikils að vinna. 3. flokkur karla hefur nú þegar tryggt sér sæti í úrslitaleiknum í Laugardalshöllinni gegn Val en þeir unnu frækinn sigur á KA.
Meðfylgjandi er myndband sem Sighvatur Jónsson hjá SIGVA media gerði eftir leik ÍBV og Fram í meistaraflokki karla, til upphitunar fyrir bikarleiki ÍBV næstu daga. Við myndbandið er endurhljóðblandað brot úr gamla Skítamóralslaginu Farin sem er til siðs að spila í höllinni í Eyjum þegar leikmenn fá tveggja mínútna brottvísun.