Nemendur í Suðurkjördæmi reka lestina

Niðurstöður prófa í stærðfræði og íslensku sem haldin voru síðastliðið haust voru kynntar í nýjasta vefriti menntamálaráðuneytisins sem kom út fyrr í mánuðinum. Líkt og undanfarinn áratug er samanburður á landinu í heild nemendum í Suðurkjördæmi í óhag.

Eyjólfur Sturlaugsson, skólastjóri Vallaskóla á Selfossi sem er stærsti grunnskólinn á Suðurlandi, segist ekki kunna skýringu á því að nemendur Suðurkjördæmis eru ár eftir ár með lakari einkunnir en nemendur í öðrum kjördæmum. Hann segir afar erfitt að meta ástæður þar að baki. �?Vallaskóli hefur verið um og yfir landsmeðaltali undanfarin ár og í ár erum við aðeins yfir meðaltalinu,�? segir Eyjólfur.

Skýringar er heldur ekki að finna hjá Námsmatsstofnun en hlutverk stofnunarinnar er meðal annars að annast framkvæmd samræmdra prófa á grunn- og framhaldsskólastigi. �?�?etta hefur ekki verið skoðað af okkar hálfu. �?eir sem ættu að skoða þetta eru fræðsluyfirvöld í viðkomandi kjördæmi,�? segir Finnbogi Gunnarsson, umsjónarmaður framkvæmdar samræmdra prófa hjá Námsmatsstofnun.

Kristín Hreinsdóttir, forstöðumaður Skólaskrifstofu Suðurlands, segir það ekki í hlutverki skólaskrifstofunnar að finna skýringar að baki slökum árangri nemenda Suðurkjördæmis. �?Skólaskrifstofa Suðurlands er ekki stjórnsýsluvald og því ekki í okkar hlutverki að skoða þetta. Sveitarstjórnirnar á Suðurlandi bera ábyrgð á fræðslumálum og ábyrgðin er því þeirra,�? segir Kristín.

Hún segir skólana og sveitarstjórnir á Suðurlandi hafa skoðað málið en skýringar séu ekki einhlítar �?�?að eru margar skýringar á þessu, til dæmis samsetning íbúanna á svæðinu með tilliti til menntunarstigs. Ein af skýringunum kann því að vera að Suðurland er láglaunasvæði,�? segir Kristín og á þá við að námsárangur nemenda vaxi með aukinni menntun foreldranna. �?Gæði skólastarfs á Suðurlandi er hins vegar ekki lakara en annarsstaðar á landinu,�? segir Kristín.

Nýjustu fréttir

Sigla síðdegis í Landeyjahöfn
Prófkjör leið til að sameina flokkinn á ný
Þrjú ár frá fyrstu skóflustungu í Viðlagafjöru
Gul viðvörun: Norðaustan hríð
ÍBV vann Álaborg í æfingaleik á Spáni
Dýpkun Landeyjahafnar kostaði 600 milljónir í fyrra
Gamla myndin
Eyjarnar lönduðu fullfermi í heimahöfn

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.