Nokkrar kærur liggja fyrir eftir helgina
Lögreglan hafði í mörg horn að líta í liðinni viku enda töluverður fjöldi fólks í bænum og þá sérstaklega um helgina. Mikil fjöldi fólks sótti skemmtun á Skipasandi og fór skemmtana haldið þokkalega fram að mestu. Eitthvað var um pústra og liggja þegar fyrir nokkrar kærur vegna líkamsárása.
Eins og þegar hefur komið fram í fjölmiðlum er til rannsóknar meint kynferðisbrot sem tilkynnt var til lögreglu að morgni sunnudagsins 5. júlí sl. Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknar málsins en hefur verið látinn laus. Málið er í rannsókn.
Fimm líkamsárásir voru tilkynntar lögreglu eftir skemmtanahald helgarinnar og hafa fjórar þeirra þegar verð staðfestar. Ekki er um alvarlega áverka að ræða í þessum árásum en í einni þeirra kvarnaðist upp úr tönn.
Tvö fíkniefnamál komu upp í liðinni viku en í öðru málinu var drengur á þrettánda ári tekin með tóbaksblandað maríhúana. Í framhaldi af því var maður um tvítugt handtekinn og viðurkenndi hann að hafa seld drengnum efnið.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku en um var að ræða árekstur þriggja bifreiða á Heiðarvegi. �?kumaður einnar bifreiðarinnar kvartaði yfir eymslum eftir óhappið. Lítið tjón varð hins vegar á bifreiðunum.
Fimm kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum, en um er að ræða m.a. brot á stöðvunarskyldu, vanræksla á að nota öryggisbelti í akstri og notkun farsíma í akstri án handfrjáls búnaðar.

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.