Nostalgíuleikur í kvöld í Eyjum
Í kvöld fara nokkrir leikir fram í Coca Cola bikarkeppni kvenna í handbolta. ÍBV teflir fram tveimur liðumí keppninni, eins og í fyrra en A-lið ÍBV á fyrir höndum erfiðan leik því stelpurnar sækja Stjörnuna heim í Garðabæinn og hefst leikurinn klukkan 18:00. Hálftíma síðar tekur B-lið ÍBV á móti Haukum í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja en í B-liðinu má finna nokkra fyrrum leikmenn ÍBV liðsins, svo sem Andreu Atladóttur, Ingibjörgu Jónsdóttur, Guðbjörgu Guðmannsdóttur, �?órsteinu Sigurbjörnsdóttur, Rakeli Hlynsdóttur, Bjarnýju �?orvarðardóttur, Anítu Ýr Eyþórsdóttur, Grigore Gorgata og �?órunni Jörgensdóttur.
�??�?etta er hörkulið sem við erum með og það besta við það er að við erum með fullt af skiptimönnum, svona ef við verðum eitthvað þreyttar,�?? sagði Andrea í stuttu spjalli við blaðamann Eyjafrétta. Hún reiknar með erfiðum leik.
�??Já þetta verður erfiður leikur en við höfum sett okkur markmið. �?að er að skora meira en 20 mörk í leiknum.�??
Og þá væntanlega að halda Haukum undir 20 mörkum?
�??�?að var reyndar ekkert rætt um það í markmiðunum,�?? sagði Andrea og hló. �??En við ætlum að reyna að hafa gaman að þessu og svo sjáum við bara til hvernig gengur. Við höfum auðvitað undirbúið okkur af krafti, mætt á heilar fjórar æfingar og erum allar í góðu formi,�?? sagði Andrea og hló.

Nýjustu fréttir

Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna
Brottför seinni ferðar flýtt vegna versnandi veðurs
Níu útgefendur fá styrki til fjölmiðlunar í héraði
Óveðrið í myndum
Uppvakningafaraldur skellur á Íslandi í nýju hlaðvarpi úr Eyjum
Þakplata farin að losna – hviður náðu 51 m/s á Stórhöfða
Skólahaldi seinkað til klukkan 9 vegna veðurs
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.