Notum endurskinsmerkin
Eins og undanfarnar vikur þá var frekar rólegt hjá lögreglu og þrátt fyrir að fjöldi fólks hafi verið að skemmta sér um helgina voru fá útköll á veitingastaði bæjarins um helgina.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur og var hann jafnframt sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
�?á liggja fyrir tvær sektir vegna brota á umferðarlögum en um var að ræða akstur gegn rauðu ljósi og ólöglega lagningu ökutækis.
Eitt umverðaróhapp var tilkynnt lögreglu í vikunni en um var að ræða árekstur á gatnamótum Illugagötu og Kirkjuvegar. Engin slys urðu á fólki en nokkuð tjón varð á ökutækjum.
Lögreglan vill minna gangandi vegfarendur á að nota endurskinsmerkin núna þegar svartasta skammdegið er að ganga í garð. Sérstaklega vill lögreglan minna foreldra og forráðamenn að setja endurskinsmerki á börn sín sem og að gæta að ljósabúnaði reiðhjóla barna sinna.
Lögreglumenn sem hafa verið við eftirlit við skólana á morgnana hafa orðið varir við að sum reiðhjól eru án ljósa og endurskinsmerkja og eins hafa börn á leið í skólann verið án endurskinsmerkja. Hvetur lögreglan til að þessu verið kippt í liðinn hið fyrsta.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.