Númeraplötum stolið
Vikan var ekki mjög erilsöm hjá lögreglu en þó komu, að vanda, upp ýmis atvik sem leysa þurfti. Skemmtanahaldið gekk með ágætum en frekar rólegt var í kringum veitingastaði bæjarins og fá útköll í tengslum við skemmtanir sem haldnar voru.
Tveir þjófnaðir voru kærðir til lögreglu í liðinni viku og var í öðru tilvikinu um að ræða þjófnað á Iphone síma en í hinum var um að ræða þjófnað á númeraplötum bifreiðar sem lagt var á Hásteinsvegi. Talið er að númeraplötunum hafi verið stolið aðfaranótt 19. júní sl.
Laust eftir hádegi þann 16. júní sl. var óskað eftir aðstoð lögreglu að Spröngunni en þar hafði drengur á níunda ári fallið úr spröngunni og misst meðvitund. Drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja en mun ekki hafa orðið meint af fallinu.
Síðdegis þann 19. júní sl. var lögreglu tilkynnt um að ökumaður vinnuvélar hafi misst stjórn á akstrinum á Strandvegi með þeim afleiðingum að vinnuvélin lenti utan vega og fór á hliðina. Tildrög slyssins munu vera þau að vélinni var ekið niður af Nýjahrauni og inn á Strandveg þegar ökumaðurinn missti stjórn á akstrinum með fyrrgeindum afleiðingum. �?kumanninn sakaði ekki en líklegt verður að telja að vinnuvélin sé ónýt.
Tvær kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum en í öðru tilvikinu er um að ræða kæru vegna aksturs á negldum hjólbörðum. Í hinu tilvikinu er um að ræða umferðaróhapp þar sem sá sem óhappinu olli lét sig hverfa af vettvangi án þess að tilkynna um það. �?happið mun hafa átt sér stað annaðhvort á bifreiðastæðinu við Hraunbúiðir eða bifreiðastæðinu við Ísfélagið v/Miðstræti þann 20. júní sl.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.