�??�?að skiptir hvorki máli fyrir mig né aðra í meirihlutanum hverjir sitja í ríkisstjórn á hverjum tíma. Hagsmunir Vestmannaeyja ná langt út fyrir einhverja mögulega flokkshagsmuni. Krafa okkar er skýr. Hönnun á nýrri ferju, sem ræður við a.m.k. 3,5m ölduhæð við Landeyjahöfn, skal lokið í byrjun næsta árs. �?á þarf strax að hefja smíði. Ferjan skal síðan vera komin í þjónustu við Vestmannaeyjar eigi síðar en 2016. Við sættum okkur ekki við einhverjar hálfkveðnar vísur í þessu samhengi heldur viljum að málin séu á hreinu. Stór hluti af því er að fjármögnun sé tryggð í fjárlögum,�?? sagði Elliði Vignisson, bæjarstjóri, þegar hann var spurður álits á því að í frumvarpi til fjárlaga næsta árs er ekki gert ráð fyrir fjármagni til nýrrar ferju fyrir Vestmannaeyjar.
Elliði vitnar í ályktun bæjarráðs sem lýsti á fundi sínum yfir undrun og vonbrigðum með að ekki sé tryggð fjármögnun á nýrri Vestmannaeyjaferju í fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi. Bæjarráð vekur athygli á því að í frumvarpinu segir: �??Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvernig háttað verður fjármögnun á nýrri Vestmannaeyjaferju en gert er ráð fyrir að það mál verði skoðað sérstaklega þegar fullnaðarhönnun liggur fyrir.�??
�?etta segir bæjarráð orðhengilshátt, ekki boðlegan samfélagi sem beðið hefur milli vonar og ótta vegna ótryggra samgangna í fjögur ár. Krafa Vestmannaeyjabæjar sé að tafarlaust verði tryggð fjármögnun á nýrri Vestmannaeyjaferju í fjárlögum fyrir komandi ár.
Bæjarstjóra var falið að boða til fundar með þingmönnum Suðurkjördæmis næsta mánudag og krefst svara frá vegamálastjóra hvort að það fjármagn, sem ætlað er í rekstur Landeyjahafnar, dugi til að veita þá þjónustu sem þörf er á allan ársins hring. Til dýpkunar, reksturs mannvirkja og áframhaldandi þróunar og rannsókna til að vinna höfnina út úr þeim vanda sem glímt hefur verið við frá opnun hennar.
Bæjarráð vill líka skýr og tafarlaus svör frá samgönguyfirvöldum um það hvernig samgöngum við Vestmannaeyjar verður háttað þegar til þess kemur að Herjólfur tekur upp siglingar í �?orlákshöfn. Í því samhengi er minnt á þá kröfu að Landeyjahöfn verði áfram nýtt af öðrum sæförum með heimild til þjónustu á siglingaleiðinni milli lands og Eyja.
�??�?g hef þegar óskað eftir því að þingmenn komi hingað til fundar við okkur 22. september og á ekki von á öðru en það verði auðsótt,�?? sagði Elliði. �??�?g hef einnig sent vegamálastjóra fyrirspurn um hvað skert framlög merkja og hvort það leiði til þjónustuskerðingar. Bæjarstjórn mun fylgja þessu máli eftir eins og henni er frekast unnt. Við gerum einnig ráð fyrir því að þingmenn okkar geri slíkt hið sama.�??
>> Nánar í Eyjafréttum