Nýja skipið heitir Sigurður
Í dag var nýju skipi Ísfélags Vestmannaeyja hf. gefið nafnið Sigurður í Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbúl í Tyrklandi þar sem skipið verður afhent tilbúið til veiða á næstu dögum. Sigurður fær einkennisstafina VE 15 og skipaskrárnúmerið 2883. �?etta kemur fram í fréttatilkynningu frá Ísfélaginu.
Sigurður VE er 80 metra langur og 17 metra breiður og er afar vel búinn til veiða á uppsjávarfiski s.s. loðnu, síld, makríl og kolmunna. Aðalvélin er 4.500 kW og kæligetan er 2×1.300.000 kcal/klst. Kælitankar skipsins eru 12 og eru samtals 2.970 rúmmetrar þannig að burðargeta skipsins er mikil og styður hún vel við öfluga landvinnslu félagsins í Vestmannaeyjum og á �?órshöfn.
Til gamans má geta þess að eldra skip Ísfélagsins með sama nafni var smíðað árið 1960 í �?ýskalandi og var 72 metra langt og 10 metra breitt. Í því var 1.766 kW Nohab Polar aðalvél og bar skipið um 1.500 tonn í lestum sem ekki voru útbúnar til að kæla aflann.
Kaupin eru liður í endurnýjun á skipaflota Ísfélagsins og þáttur í hagræðingaraðgerðum þess ekki síst í kjölfar sífellt aukinnar skattlagningar stjórnvalda. Félaginu er ætlað að greiða um einn og hálfan milljarð í veiðigjöld og tekjuskatt á þessu ári. Félaginu er því nauðsynlegt að fækka skipum og auka hagræði á öllum sviðum rekstursins. Gera má ráð fyrir að hið nýja skip leysi tvö af eldri skipum félagsins af hólmi með tilheyrandi lækkun olíu- og launakostnaðar.
Skipstjóri á Sigurði VE 15 er Hörður Már Guðmundsson og yfirvélstjóri er Svanur Gunnsteinsson.
Ísfélag Vestmannaeyja hf. er elsta starfandi hlutafélag á landinu, stofnað þann 1. desember árið 1901. �?að er í fararbroddi í veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og er burðarás í atvinnulífi í Vestmannaeyjum og á �?órshöfn.

Nýjustu fréttir

Rafmótorinn tilbúinn – Herjólfur úr áætlun í allt að fjóra sólarhringa
Óboðnir gestir undir yfirborðinu
Níu lið frá ÍBV tóku þátt í Símamótinu
Heimsfaraldur á fjögurra ára fresti
Eldur í Maggý VE 108 – Slökkvistarf gekk greiðlega
Vantar pláss á hafnarsvæðinu – kanna framtíð Blátinds
Andri og Elís Þór áfram í milliriðil með u-20
Eyjamenn töpuðu gegn KR á Meistaravöllum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.