Nýr Herjólfur kominn í hönnunarferli
nýr herjólfur
Í gær stóð stýrihópur um byggingu nýs Herjólfs fyrir kynningarfundi í Höllinni. Var fundurinn vel sóttur, sennilega vel á þriðja hundrað manns. Í upphafi fundar kynnti Friðfinnur Skaftason, formaður stýrihópsins verkefni hópsins sem væri að átta sig þörfunum fyrir skipið; að setja af stað hönnun og síðan smíði skips sem sigla myndi milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Stýrihópinn skipa Andrés Sigurðsson frá Vestmannaeyjabæ, Friðfinnur Skaftason frá Innanríkisráðuneytinu, Hjörtur Emilsson, skipaverkfræðingur hjá Navis og Sigurður Áss Grétarsson starfsmaður Vegagerðarinnar. Auk þess hefur starfað með nefndinni Eiríkur Bjarnason, verkfræðingur, sem komið hefur að þessu verkefni á fyrri stigum. �?á fékk stýrihópurinn sér til ráðgjafar Jóhannes Jóhannessen, skipaverkfræðing, sem lengi hefur búið í Danmörku og unnið þar að hönnun á ferjum af margvíslegum toga.
Friðfinnur sagði það markmið hópsins að láta smíða skip sem gæti haldið uppi áreiðanlegum heilsárs samgöngum milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar, sem þýði að hanna verði skip sem geti ráðið við sem verstar aðstæður á þessari siglingaleið og að stjórnhæfni og rásfesta skipsins verði mikil.
Jóhannes Jóhannesson, skipaverkfræðingur fór yfir þá hönnun sem unnið er að. Kom fram hjá honum að skipið eigi að verða tæplega 66 metra langt eða um 5 metrum styttra Herjólfur og breidd þess verði rúmir 15 metrar sem er 1 metra mjórra skip en núverandi Herjólfur. Flutningsgeta þess eigi engu að síður að vera meiri. Stærð skipsins tæki mið af prófunum í hermi, þar sem prófaðar voru nokkrar stærðir og gerðir skipa við aðstæður í Landeyjahöfn. �?á kom fram hjá honum að lestun og losun verði fljótlegri en í núverandi Herjólfi og því eigi það möguleika á fleiri ferðum. Við hönnunina er lagt upp með að skipið geti siglt til Landeyjahafnar í 3,5 metra ölduhæð. Miðað við öldumælingar sem fyrir liggja, þýði það að 10 dagar á ári detta alveg út og í 30 daga á ári verði einhver truflun á áætlun innan dagsins. Margt fleira kom fram á fundinum sem gerð verða betri skil í blaði Eyjafrétta á miðvikudaginn.

Nýjustu fréttir

Sjómennskan í blóðinu nýtist í tónlistinni
Grípa þarf hjálpina þegar hún býðst
Næsta skref hjá Eyjagöngum: Borinn kominn á Landeyjasand
Skipað í ráð og nefndir Vestmannaeyjabæjar
„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.