Nýtt flugfélag í Eyjum
Kunnugleg hljóð hafa heyrst úr háloftunum að undanförnu en þar er á ferðinni Piper PA31 flugvél með einkennin TF-VEV, sem eitt sinn sinnti flugi milli Vestmannaeyja og Bakka. Hún er nú í eigu Atlantsflugs sem nýverið gekk frá kaupum á henni ásamt flugskýli á Vestmannaeyjaflugvelli. Félagið býður nú upp á flug milli Eyja og Bakkaflugvallar.
�??Sumarið 2013 staðsettum við að Skógum flugvél til að kanna markaðinn á Suðurlandi þa rsem okkur fannst vanta flugþjónustu á svæðinu milli Selfoss og Skaftafells eftir að Flugfélag Vestmannaeyja hætti starfsemi. �?essi tilraun okkar tókst vel að okkar mati þrátt fyrir afleitt sumar undir Eyjafjöllum. Skógaflugið hefur nú leitt okkur á nýjar slóðir eftir að ISAVIA leitaði til okkar í vetur með það að markmiði að fá okkur til að færa Skógaflugið yfir á Bakkaflugvöll og reyna þannig að endurvekja flug út frá þeim flugvelli og nýta þau mannvirki sem þar eru,�?? segir í tilkynningu frá Atlantsflugi.
Einnig býður félagið upp á ferðir milli lands og Eyja og heldur þannig úti facebook síðunni Eyjahopp, þar sem fólk getur hópað sig saman í vél á Bakka. �?á verður vél alltaf staðsett í Eyjum og einn flugmaður.

Nýjustu fréttir

Ábending frá Herjólfi
ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins
Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með
Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla
Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.