�?dýrast að æfa fimleika í Vestmannaeyjum
Verðlagseftirlit ASÍ tók saman hvað kostar að æfa fimleika fyrir börn á aldrinum 8 til 10 ára haustið 2014 en miðað er við fjóra klukkustundir á viku í fjóra mánuði. Mikill verðmunur er á hæsta og lægsta verðinu eða 113% en Fimleikafélagið Rán í Vestmannaeyjum er með lægstu æfingagjöld á landinu og býður jafnframt upp á fleiri klukkustundir en flest önnur félög.
�?annig kostar það 24.840 kr fyrir barn 8 til 10 ára að æfa í fimm klukkustundir í viku í fjóra mánuði hjá Rán. �?fingagjöldin hækka ekkert á milli ára og er Rán aðeins annað félagið af tveimur sem hækkar ekki æfingagjöldin á milli ára en alls voru æfingagjöld könnuð hjá 15 félögum. Næst lægstu æfingagjöldin er að finna hjá Íþróttafélaginu Hamri, 28.000 kr en Hamar hækkaði æfingagjöldin um heil 17% á milli ára, sem er mæsta hækkun félaganna fimmtán. Fyrir ári síðan var Hamar með lægstu æfingagjöldin. Eins og áður sagði er Rán bæði með lægstu æfingagjöldin og flesta klukkutímana. Aðeins eitt annað félag býður upp á jafn marga klukkutíma í viku, en það er Íþróttafélagið Grótta. �?ar eru æfingagjöld hins vegar um helmingi hærri en hjá Rán eða 48.000 kr. Aðeins þrjú félög af fimmtán hækka ekki æfingagjöldin á milli ára, Rán, Afturelding og Keflavík.
Í umfjöllun ASÍ um könnunina er tekið fram að hér sé aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðum félaganna er ekki metin. Ekki er heldur tekið tillit til þess hvað afimleika er verið að æfa. �??Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki tillit til safnanna sem íþróttafélögin standa fyrir og eða styrkja frá sveitarfélögunum, hvorki æfingagallar né keppnisgjöld eru með í gjaldinu sem borið er saman.�??
Samanburðartöflu ASÍ má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

„Fjörutíu árum síðar – með þakklæti til FÍV“
Þrír reynslumiklir sjómenn heiðraðir á Sjómannadaginn
Kristín Klara spilaði í Sundsvall með u-19 ára landsliðinu
Æskudraumur Díönu Daggar rættist
Hugrekki er oft bara að halda áfram
Skólanum slitið á Stakkó
Hrafnhildur Hallgrímsdóttir með 9,0 í meðaleinkunn
Íris ráðin bæjarstjóri til næstu fjögurra ára
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.