Olíuóhapp um borð í Sigurði VE
�?happ varð við dælingu úrgangsolíu úr Sigurði VE við bryggju í Vestmannaeyjum í gær. Slanga gaf sig með þeim afleiðingum að svartolía sprautaðist um dekk skipsins og á síðu þess bakborðsmegin. �?að tók áhöfn Sigurðar nokkrar klukkustundir að þrífa olíuna, en úrgangsolía getur verið hnausþykk og hafa menn sem urðu vitni að atvikinu haft á orði að olían hafi verið eins og malbik.
�?að má segja að það eigi ekki af áhöfn Sigurðar að ganga en skipið kom stuttu fyrir jól aftur til landsins eftir þriggja mánaða viðgerð í Noregi. Verið er að undirbúa skip Ísfélagsins, Sigurð, Heimaey og Álsey, til loðnuleitar fyrir norðaustanverðu landinu.
Á bryggjunni í dag var einnig verið að undirbúa Vestmannaey VE til bolfiskveiða eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.