Opnað fyrir umsóknir í vinnuskólann

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í vinnuskóla Vestmannaeyjabæjar 2024. Foreldrar og/eða forráðamenn ungmenna fæddra 2008, 2009 2010 og 2011 geta sótt um rafrænt hér – Umsóknarfrestur er til og með 14. apríl.

Vinnuskóli Vestmannaeyjabæjar er starfræktur yfir sumarmánuðina, frá júní og fram í ágúst. Allir unglingar í 7., 8., 9., og 10. bekk grunnskólans með heimili í Vestmannaeyjum hafa rétt til þátttöku í Vinnuskólanum.  Unglingar í 7. bekk geta aðeins valið um vikur frá 15. júlí til 16. ágúst. Unglingum er skipt í hópa og hver hefur sinn flokksstjóra. Stefnt er að hafa verkefnin sem fjölbreyttust en sem fyrr eru garðyrkjustörf og almenn umhirða bæjarfélagsins langstærsti þátturinn í vinnuskólanum.

Í flestum tilfellum er Vinnuskólinn fyrstu kynni ungmenna af launaðri vinnu og því mikilvægt að vel takist til. Það er því nauðsynlegt að umræðan á heimili sem og umfjöllun í samfélaginu sé á jákvæðum nótum. Gott er t.d. að hafa í huga að starfsfólk vinnuskóla á rétt á bæði matar- og kaffitímum. Þar sem þau hafa ekki neina sérstaka aðstöðu til umræðu er ekki óeðlilegt að þau sjáist sitja og hvíla sig öðru hvoru.

Starfstími unglinganna er misjafn eftir árgöngum:

-Árgangur 2011, 20 vinnudagar, 30 tíma á viku.  Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess kosið. Valdar eru hámark 4 vikur á tímabilinu 15. júlí til 16. ágúst.

– Árgangur 2010, 25 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga, hægt er að vinna hálfan daginn sé þess kosið. Valdar eru hámark 5 vikur af þeim sem eru í boði.

– Árgangur 2009, 30 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12- 13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 6 vikur af þeim sem eru í boði.

– Árgangur 2008, 35 vinnudagar, 30 tíma á viku. Unnið er frá 09 -16 með klukkustunda matarhlé milli 12-13 mánudaga til föstudaga. Valdar eru hámark 7 vikur af þeim sem eru í boði.

Reynt verður að koma til móts við óskir um tímabil eftir fremsta megni.  Mjög áríðandi er að skila umsóknum fyrir 14. apríl.

Laun

Unglingar fæddir 2011 798 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2010 931 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2009 1.064 kr. á klst. með orlofi
Unglingar fæddir 2008 1.330 kr. á klst. með orlofi
Laun eru greidd fyrsta virka dag hvers mánaðar og eru lögð inn á bankareikning og er launatímabil frá 26. hvers mánaðar til 25. þess næsta. Flokkstjórar hafa samband við forráðamenn áður en vinna hefst og gefa upplýsingar um hvar skal mæta ofl.

Markmið vinnuskólans er að undirbúa unglinga í vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað. Vinnuskólinn er þó ekki einungis vinna heldur er einhver tilbreyting innifalin í skólanum, eins og í öðrum skólum.

Nýjustu fréttir

Halldór Jón aftur í ÍBV
Fluttu hús í heilu lagi
Sjáv­ar­af­urð­ir: Ágæt­is aukn­ing í fe­brú­ar
Eyjarnar landa í Þorlákshöfn
Þarftu að fara á fund?
Hljómey – Klara Einars mætir
Gildin sem móta okkur
Til Sjálfstæðismanna

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.