Opnun listasýningarinnar "Konur í sjávarsamfélagi" samhliða Matey sjávarréttahátíð

Áhugaverð listasýning verður haldin í Eldheimum dagana 20-24. september samhliða sjávaréttahátíðinni Matey. Þar munu 14 listamenn sýna verk sem vekja athygli á fjölþættum störfum, hlutverkum og verkefnum kvenna í sjávarsamfélögum.

Í fyrra þegar Matey sjávarréttahátiðin fór fram í fyrsta skipti var haldin sýning í Einarsstofu á verkum í eigu Vestmannaeyjabæjar sem sýndu konu í sjávarútvegi. Þá hins vegar kom í ljós að Vestmannaeyjabær ætti aðeins 3 verk sem sýna konur við störf í sjávarútvegi. Þó verk í eigu Vestmannaeyja séu fá er ekki þar sem sagt að slík verk séu ekki til á landinu. Í gegnum tíðina hafa konum líklega ekki verið gefin nægilegur gaumur þegar kemur að túlkun og framsetningu listamanna og störf karla vegið meira hjá listafólki. Það er þó staðreynd að það er meira í kringum fiskinn en að veiða hann. Það þarf að verka hann til þess að hægt sé að matreiða hann.

Í ár var því ákveðið að blása til sýningar á Matey sjávarréttahátíðinni þar sem félögum í Lista-og menningarfélaginu í Vestmannaeyjum yrði boðið að taka þátt í sýningu sem ber heitið “Konur í sjávarsamfélagi”. Sýningarstjóri er Gíslína Dögg Bjarkadóttir listakona í Vestmannaeyjum.

“Sýningunni í Eldheimum er ætlað að heiðra og vekja athygli á fjölþættum störfum, hlutverkum og verkefnum kvenna í sjávarsamfélögum.  Konur í sjávarsamfélögum sáu og sjá auðvitað einnig um öll hin fjölmörgu „ósýnilegu“ störf í landi sem nauðsynleg eru svo samfélagið sem heild geti þrifist.”

Nýjustu fréttir

Ekki einhugur um milljóna framlag til ÍBV
Loðnuvertíðin hafin í Eyjum
Heiðurshjónin Hjalti og Vera Björk Eyjafólk ársins 2025
Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.