Áhugamannahópur um bættar samgöngur við Vestmannaeyjar telur að rangfærslur séu í minnisblaði Vegagerðarinnar um grísku ferjuna sem þeir hafa vakið athygli á sem valkosti í stað nýs Herjólfs sem þeir telja of lítinn. Hafa þeir óskað eftir því við vegamálastjóra að gerð verði ný úttekt á málinu og hafa jafnframt leitað eftir umsögn Samgöngustofu um skipið. Vegamálastjóri hefur lagt til að áhugamannahópurinn komi á fund hans í næstu viku til að fá frekari skýringar.
�?etta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. �?ar segir Vegagerðin reyni að slá á væntingar Eyjamanna um að hægt væri að fá notaða gríska ferju til að leysa samgöngumál Eyjanna. Í minnisblaði Vegagerðarinnar kom fram að gríska ferjan Achaeos geti ekki notað Landeyjahöfn nema fjórða hvern dag að meðaltali á meðan frátafir nýs Herjólfs væru áætlaðar 10%. Ástæðan er munur á stærð skipanna og djúpristu. Gríska ferjan er stærri og mun burðameiri. �?að er einmitt ástæðan fyrir því að áhugamannahópurinn Horft til framtíðar vill láta reyna á þennan kost. �?eir telja það tilraunarinnar virði að fá hana á kaupleigu en ekki verði teknar ákvarðanir um kosti sem ekki muni duga til frambúðar. �?eir telja að nýr Herjólfur anni ekki þeirri eftirspurn sem nú þegar er á háönn og muni enn síður gera það þegar til framtíðar er litið. Vísa þeir meðal annars til spár um aukningu í flutningum á milli lands og Eyja sem kemur fram í skýrslu Vegagerðarinnar.
Áhugamannahópurinn sættir sig ekki við svör Vegagerðarinnar. Sigurmundur G. Einarsson úr áhugamannahópnum tekur fram að hópurinn hafi aðeins áhuga á bættum samgöngum við Vestmannaeyjar svo Eyjarnar fái að blómstra. Hann segir að minnisblað Vegagerðarinnar standist ekki skoðun og sé því fullkomlega óásættanlegt sem svar Vegagerðarinnar.
Áhugahópurinn hefur formlega óskað eftir því við vegamálastjóra að gerð verði ný úttekt á málinu og til þess fengnir óvilhallir fagaðilar. �??Við hljótum að gera þá kröfu til Vegagerðarinnar að fagmennska sé höfð í fyrirrúmi þegar um er að ræða framtíðarhagsmuni og þróun heilla byggðarlaga í landinu ásamt sparnaði sem gæti skipt milljörðum króna sem ríkið á ekki of mikið af,�?? segir í bréfinu. Vegamálastjóri svaraði með því að leggja til að fulltrúar áhugamannahópsins komi á fund í Vegagerðinni. �?ar gætu fulltrúar Vegagerðarinnar skýrt betur sjónarmið sem þeir hafa sett fram varðandi grísku ferjuna. Stefnt er að fundi í næstu viku.
Fram hafði komið í svari Vegagerðarinnar við fyrirspurn áhugamannahópsins að Sigurður Áss Grétarsson, framkvæmdastjóri siglingasviðs, var aðalhöfundur minnisblaðsins en einnig hafi verið notuð innlegg frá skipaverkfræðingum og starfsmönnum Vegagerðarinnar. �?ar koma einnig fram upplýsingar um þau gögn sem lágu til grundvallar álitinu en þau voru meðal annars upplýsingar frá áhugahópnum og skipaverkfræðingi og upplýsingar um skipið sem fengnar voru af netinu, bæði myndir og tæknilegar upplýsingar.
Áhugahópurinn fór í gær á fund bæjarstjórnar til að óska eftir stuðningi við vinnu sína. �?á er í gangi söfnun
undirskrifta undir áskorun til yfirvalda um að efnt verði til atkvæðagreiðslu um vilja Eyjamanna í samgöngumálum. Í gær höfðu tæplega 500 manns skrifað undir.