Óvíst með framhaldið hjá Bergey
Valtýr Auðbergsson og Arnar Richardsson að störfum við að sótthreinsa Bergey VE.

Fimm úr áhöfn Bergeyjar VE hafa reynst smitaðir af Covid-19. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Arnar Richardsson, rekstrarstjóra Bergs-Hugins, og spurði hvenær þetta hefði gerst. „Það voru áhafnarskipti í Neskaupstað á fimmtudaginn. Einn sem var að koma í land fór að finna fyrir einkennum á föstudag og var þá kominn til Reykjavíkur. Hann fór í hraðpróf og reyndist þá jákvæður. Það var endurtekið þrisvar sinnum og skilaði alltaf jákvæðri niðurstöðu. Síðan fór hann í PCR-próf og þá var niðurstaðan staðfest. Þegar þarna var komið sögu fór öll skipshöfnin í hraðpróf um borð og þá reyndist annar jákvæður. Landhelgisgæslunni var þegar tilkynnt um stöðuna og haldið til Vestmannaeyja. Sá þriðji bættist síðan við eftir hraðpróf á laugardagsmorgun. Í Vestmannaeyjum var tekið PCR-próf af áhöfninni og þegar niðurstaðan úr því lá fyrir bættust tveir í hópinn þannig að alls voru þá smitaðir orðnir fimm talsins. Þegar í land kom fór öll áhöfnin í sóttkví og í gær var allt skipið sótthreinsað hátt og lágt. Það er alveg óvíst hvenær Bergey heldur til veiða á ný,“ segir Arnar.

Nýjustu fréttir

Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Laxey á Seafood Expo North America
Trúin og andlegt starf styrkur í sorginni
Heimir heldur áfram með Írland – samningur til 2028
Vatn loksins farið að renna í laugina
Eyjalistinn tilbúinn – Miðflokkurinn kynnir sinn lista í kvöld
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.