�?að verður mikið um að vera á Háaloftinu um helgina. Allt byrjar þetta á fimmtudagskvöldið, þegar vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar til margra ára kemur á Háaloftið með uppistand. Í raun er óþarfi að kynna Pétur Jóhann Sigfússon fyrir Eyjamönnum, en fyrir þá sem hafa verið eitthvað sunnan við sig síðustu ár, þá þarf ekki annað en minna þá á að Pétur Jóhann var útnefndur fyndnasti maður Íslands árið 1999 og hefur verið það síðan, þótt aðrir hafi borið titilinn eftir það. Hann var líka aðalstjarna gamanþáttaraðanna Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin. Pétur er eins og alþjóð veit, gríðarlega skemmtilegur og eftirsóttur uppistandari og hefur hann unnið marga og stóra sigra í kvikmyndum og sjónvarpi.
Hinn eini sanni Pétur Jóhann ætlar að skella sér á uppáhalds eyju allra landsmanna og vera með uppistand á Háaloftinu! �?að er ekki á hverjum degi sem að þessi fáránlega fyndni piltur er með uppistand opið öllum, og hvað þá í Eyjum.
Forsala miða er í Eymundsson og kostar 2.900 í forsölu en 3.900 við hurð.
ATH �?? takmarkað magn miða er í boði. Húsið opnar kl 21:00. Skynsamlegt er að mæta snemma til að ná góðum sætum.
Taktu kvöldið strax frá og græjaðu frí í vinnunni fram að jólum, harðsperrur í maga munu orsaka fjarveru þína.
P�?TUR J�?HANN – HÁALOFTIÐ – FIMMTUD. 26. J�?N KL 22:00.”
Blítt og létt á sérstakri Shellmóts skemmtun á Háaloftinu á föstudagskvöld �?? allir Shellmótsgestir velkomnir �?? FRÍTT INN!
Í fyrra kom Blítt og létt hópurinn til liðs við Shellmótið og hélt létta söngskemmtun í Höllinni. �?ótti þetta hepnast það vel að ákveðið var að endurtaka leikinn, en færa þetta á Háaloftið. Rétt er að taka fram að allir eru velkomnir á þessa skemmtun og er frítt inn fyrir Shellmótsgesti, einnig foreldra og aðra aðstandendur sem eru hér til að styðja sitt lið og eru þeir sérstaklega hvattir til að taka þátt í gleðinni. Blítt og létt hópurinn hefur þann háttinn á að varpa textunum upp á tjald, þ.a. allir geta sungið með. Flest lögin eru landskunn og við lofum frábærri skemmtun ;D).
Tríó �?óris �?lafssonar �?? Háaloftinu á laugardag �?? frítt inn!
Við kynnum með stolti þetta undurfagra tríó, sem við erum svo heppnir að fá til okkar á laugardagskvöld. Sjón er reyndar sögu ríkari. �?etta tríó hefur gert allt nema spila hjá Jay Lenno. Kunna allt og eru til í allt. Við lofum mögnuðu kvöldi og það er ekki úr vegi að mæta snemma því það verður Happpy hour frá ellefu til eitt….og reiknaðu nú!
Hlökkum til að sjá þig.
Kveðja �?? starfsfólk Háaloftsins.