Pósthúsið flutt á Strandveginn
Í morgun opnaði Íslandspóstur í Vestmannaeyjum nýtt pósthús að Strandvegi 52. Fyrsti viðskiptavinurinn á nýja pósthúsinu var Haraldur Halldórsson, starfsmaður Safnahússins, en hann fer daglega á pósthúsið til sækja og senda og hefur gert síðan árið 2008.
Gamla pósthúsið við Vestmannabraut 22 stendur nú autt en þar hefur Pósturinn verið til húsa í u.þ.b. 60 ár. Í hófi sem Pósturinn hélt í gær fyrir starfsfólk og boðsgesti á nýja staðnum, kom fram hjá Ingimundi Sigurpálssyni, stjórnarformanni Póstsins, að nýja húsnæðið væri rúmir 300 fermetrar, en það gamla væri rúmir 800 fermetrar. Samt færi miklu betur um starfsemina á nýja staðnum, enda uppfyllir hann kröfur til nútíma pósthúss. Kostnaðurinn við kaupin og breytingarnar sem gera þurfti væru um 70 milljónir króna. �?að var breitt bros yfir andlitum allra starfsmanna Póstsins þegar opnað var morgun, en þeir hafa lengi unnið við afar bágborna aðstöðu á Vestmannabrautinni en eru nú komnir í glæsilegt nýtísku pósthús.

Nýjustu fréttir

Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.