Rosabaugur í hádeginu
Í hádeginu sást rosabaugur yfir Eyjum. Á vef Veðurstofunnar segir að rosabaugur myndist þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Hún inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því það er yfirleitt frost svona hátt uppi.
Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn.
Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum. �?etta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefnu.
Rosabaugur (halo) er oftast einlitur en stundum er baugurinn rauðleitur að innanverðu (nær sólinni) en blár að utanverðu. Stundum myndast bjartir blettir (úlfar, e. parhelia, sun dogs) sitt hvoru megin við sólina. Blettirnir eru 22-24° frá sólinni. Sé greint á milli blettanna kallast sá hægra megin (á undan sólinni) gíll en sá vinstra megin úlfur. Stundum sést aðeins einn blettur.
Ef gíll og úlfur sjást samtímis er sólin sögð í úlfakreppu. Munnmæli um veður segja að ekki sé gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni (og í fullu vestri sé).

Nýjustu fréttir

Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.