Sagan endurtekur sig
Guðlaugur Sigurðsson var einn stofnenda Frétta á sínum tíma og var ritstjóri blaðsins. Hann skrifar á faceboosíðu sína minningarbrot frá þessum tíma og tengir þær nýafstöðnum Hæstaréttardómi. �??Í tilefni Hæstaréttardóms yfir siðlausum �??banksterurm�??. Mér er minnisstætt þegar ég vann sem blaðamaður og prentari í Eyjum í miklu umróti stuttu eftir gosið. Var róttækur í skoðunum á þessum aldri og lét ýmislegt flakka í Fréttum. �?að var stundum erfitt að finna fréttaefni í þessu litla samfélagi á þessum tíma.
Einu sinni komst ég í fundargerðir bæjarráðs, þar sem sagt var frá að starfandi bæjarstjóri hefði dregið sér um eina milljón gamalla króna fé af söfnun Rauða krossins, sem renna átti til hjálparstarfs í Eyjum. �?etta var í raun stórfrétt, sem ég birti í Fréttum, smáblaðinu, við lítinn fögnuð ráðamanna allt um kring. Blákaldur sannleikur. Í kjölfarið farið fram á að ég bæðist afsökunar á þessum skrifum, sem ég gerði �??á minn hátt�??, þvílík var pressan. Af þessu tilefni var boðað til borgarafundar í Félagsheimilinu um fjármál bæjarins til að útskýra fjármál bæjarins og hvað væri hægt að gera til að bæta hag bæjarins. Á fundinum sté þáverandi bæjarstjóri í ræðustól og spurð fundarmenni: �??…hvað er ein milljón, þegar vantar heilan milljarð í bæjarkassann?�??.
Sagan er alltaf að endurtaka sig, samt er breyting, því núna hafa fjölmiðlar mun sterkari stöðu en áður, þótt valdamiklir aðilar reyni allt hvað þeir geta til að réttlæta gjörðir sínar og hafa áhrif á þá…
Á myndinni má sjá vinnufélaga að lesa nýútkomnar Fréttir.

Nýjustu fréttir

Áform um þrjú ný einbýlishús við Reglubraut
Evrópusambandið, meira en tollabandalag
50 ár frá opnun sundlaugar Vestmannaeyja
Ingunn Ása – Mjög gaman að vera valin í Landsliðið
Fortíð Vestmannaeyja lifnaði við á sýningu Hlyns
Lundaveiði heimiluð þrátt fyrir neikvæða umsögn Náttúrustofu
Mikilvægur sigur ÍBV gegn Víkingi R.
Terra segir upp samningi við Vestmannaeyjabæ
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.