Sanngjarnt jafntefli gegn Val
Valur og ÍBV áttust við í Pepsi deild karla núna í dag þar sem liðin skildu jöfn 1-1, eftir að staðan hafði verið 0-1 í hálfleik, ÍBV í vil. Leikurinn fór rólega af stað fyrstu tíu mínúturnar en þá fóru liðin aðeins að þreifa fyrir sér. Valsmenn voru betri framan af hálfleiknum en upp úr miðjum hálfleik hresstust leikmenn ÍBV til muna og á 36. mínútu fengu Eyjamenn víti eftir að varnarmaður Vals fór með fótinn í höfuð Hafsteins Briem, háskaleikur. Jonathan Glenn fór á punktinn og skoraði örugglega fram hjá Ingvari Kale, markmanni Vals. Eyjamenn voru svo óheppnir nokkrum mínútum síðar að hafa ekki komist í 2-0 þegar Bjarni Gunnarsson setti boltann í stöngina á marki Vals. Staðan í hálfleik 0-1.
Valsmenn voru aðeins ákveðnari í síðari hálfleik og varði Guðjón Orri í marki ÍBV mjög vel þegar Sigurður Egill Lárusson var í sannkölluðu dauðafæri. Valsmenn jöfnuðu svo á 69. mínútu þegar Kristinn Freyr Sigurðsson skoraði eftir að Patrick Pedersen hafði skallað boltann í slánna. 1-1 jafntefli var staðreynd og stöðvuðu því Eyjamenn sigurgöngu Vals og nældu í leiðinni í sitt fyrsta stig á útivelli í sumar.

Nýjustu fréttir

Vinnslustöðin á erlendum vettvangi
„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.