Sannkölluð tónlistarveisla fyrir allar kynslóðir í Höllinni á fimmtudags- og föstudagskvöld.
Frábærir tónleikar í kvöld með einum ástsælasta og skemmtilegasta söngvara Íslands, báðum megin aldamótanna, Ragga Bjarna verða í Höllinni í kvöld. Hann kemur þar fram ásamt �?orgeiri Ástvaldssyni, eða Togga í Tempó og þeir, ásamt Blítt og létt hópnum ætla að vera á sjómannanótunum þetta kvöld. Án vafa taka þeir félagarnir eitthvað af gömlu góðu lögunum. Blítt og létt hópurinn verður síðan á sínum hefðbundnu Eyjalaganótum og þetta verður því alveg frábær blanda. Húsið opnar kl. 20.00 og tónleikarnir hefjast kl. 21.00. Verð miða er 2.500,-
Föstudagurinn 3.júlí – Kk band ásamt Eyþóri Gunnarssyni og Bjartmar og Bergrisarnir.
KK og Bjartmar koma enn og aftur á Goslokahátíð í Eyjum og þeir ásamt sínum frábær tónlistarfélögum flytja öll sín frægustu lög og bestu lög. Fyrst stígur KK á stokk og með honum enginn annar en Eyþór Gunnarsson og strax á eftir þeim stígur á skokkar enginn annar en Bjartmar Guðlaugsson upp á svið, ásamt Bergrisunum sínum. �?eir verða á algjörlega í essinu sínum og flytja öll þekktustu lög Bjartmars, þar á meðal �?skalag þjóðarinnar, �?annig týnist tíminn. �?eir félagar lofa svakalegri stemningu, enda vanir menn á verð og það er líka allt eins víst að KK og Bjartmar, ásamt þessum frábæru listamönnum munir klára kvöldið saman. Húsið opnar kl. 21.00 og tónleikarnir hefjast kl. 22.00. Miðaverð er aðeins 3.500,-
Eftir tónleikana bæði kvöldin verður læðst upp á Háaloft og þar heldur fjörið að sjálfsögðu áfram……

Nýjustu fréttir

„Vestmannaeyjar eru til fyrirmyndar“
Hljómey og Vestmannaeyjabær framlengja samstarfið
Loðnuráðgjöf lækkar úr 358 þúsund tonnum í tæp 106 þúsund
Óvenjudjúp lægð í spákortum – gul viðvörun á Suðurlandi
Þrjár uppsagnir hjá Vestmannaeyjabæ úrskurðaðar ólögmætar
Skráning hafin fyrir hrekkjavökuna
Laxey meðal þátttakenda á Lagarlífi í Hörpu
Leggja til óbreytt útsvar á næsta ári
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.