Seinkun hjá Baldri vegna bilunar - uppfært
20250909 203208
Baldur kemur að bryggju í Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur.

Baldur átti að sigla frá Landeyjahöfn klukkan 17.00 en var hins vegar að leggja úr höfn þegar þessi frétt er skrifuð kl. 17.50. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er um að ræða bilun í stjórnbúnaði skipsins sem tókst að gera við.

Í tilkynningu frá Herjólfi sem var að birtast á facebook síðu félgsins segir að Baldur sé að leggja af stað frá Landeyjahöfn en brottför átti upphaflega að vera kl 17.00

Seinkun verður því á næstu brottför frá Vestmannaeyjum eða u.þ.b. 45 mín töf. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda, segir í tilkynningunni.

Uppfært kl. 20.00.

Fyrsta ferð morgundagsins fellur niður frá Vestmannaeyjum kl 07.00 og til baka frá Landeyjahöfn kl 08.00 vegna viðgerðar á stjórntækjum Baldurs.  Farþegar eru beðnir um að hafa samband við afgreiðslu Herjólfs í síma 4812800 sem eiga bókað í þessar ferðir.

 

Nýjustu fréttir

Málþing, súpa og spjall
Eyjamenn sækja ÍR heim í bikarnum í kvöld
Hátt í 50 manns við síldarvinnslu hjá VSV
Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.