Séra Kristján Björnsson færir sig um set
Séra Kristján Björnsson, sóknarprestur Vestmannaeyjaprestakalls, mun taka við þjónustu í Eyrarbakkaprestakalli frá og með 1. ágúst. Biskup Íslands auglýsti í byrjun júní eftir presti til að sinna afleysingaþjónustu í kallinu frá og með 1. júlí í fullu starfi. Ákvörðunin er tekin í samráði við formenn sóknarnefnda Eyrarbakkaprestakalls.
Séra Jón Dalbú Hróbjartsson sem sinnt hefur prestakallinu að undanförnu mun þjóna því í júlímánuði.
Ennfremur hefur verið ákveðið að séra �?orvaldur Karl Helgason þjóni Selfossprestakalli frá 14. júlí til júlíloka en þann 1. ágúst taka tveir prestar við störfum í Selfossprestakalli.
Um er að ræða Séra Guðbjörgu Arnardóttur sem verður sóknarprestur og Séra Ninnu Sif Svavarsdóttur sem verður prestur.
Vísir.is greindi frá

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.