Síðasti leikur kvennaliðsins á morgun
Kvennalið ÍBV leikur síðasta leik sinn í sumar á morgun, laugardag á Hásteinsvelli. Klukkan 14:00 taka þær á móti Breiðabliki sem hefur að engu að keppa. ÍBV gæti hins vegar með sigri fært sig eitthvað ofar í töflunni en liðið situr nú í sjötta sæti en gæti, ef allt gengur upp, endað tímabilið í þriðja sæti. Leikurinn er jafnframt síðasti leikur liðsins undir stjórn Jóns �?lafs Daníelssonar sem hefur verið þjálfari liðsins síðustu átta ár. Hann mun reyndar ekki fara langt, því hann mun starfa áfram sem aðstoðarþjálfari við hlið Ian Jeffs sem tekur við liðinu í lok leiktíðar.
Samhliða leiknum verða ungir iðkendur heiðraðir fyrir góða frammistöðu. Jafnframt geta allir 12 ára og yngri sem mæta í hvítu, átt möguleika á flottum vinningi.

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.